Aftur til suður Frakklands
Kl fjögur í dag leggjum við í hann til suður Frakklands aftur. Við erum að fara til Bandol héraðsins þar sem okkur og nokkrum öðrum hefur verið boðið aftur í heimsókn á vínekruna góðu. Núna er búið að hreinsa sundlaugina þeirra og það er spá 33°C hita svo þetta ætti að verða gaman. Við keyrum þangað og það tekum um 7 tíma. Bíllinn er eins og áður hefur komið fram ekki loftkældur, en við erum betur búin en síðast. Við versluðum 12V kælibox sem getur tekið ansi mikið magn. Þetta verður þó stutt stopp, því það er mikið að gera hjá okkur báðum. Við leggjum af stað tilbaka seinnipartinn á sunnudaginn.

Skrifad 6/24/2005 | Jón |

Nýjar myndir
Myndirnar frá heimsóknunum eru komnar á netið.

Skrifad 6/13/2005 | Jón |

Góðar fréttir
Fyrr í vikunni fékk ég mjög góðar fréttir. Greinin sem ég skrifaði fyrir ráðstefnuna í Grenoble var valin til að verða gefin út í vísindatímariti. Afskaplega áhugasamir geta nálgast greinina með því að smella hér

Skrifad 6/10/2005 | Jón |

Hvað er að frétta?
Þó það hafi ekkert heyrst frá okkur lengi hefur margt gerst á meðan. Við fengum
Davíð & Bergrós í hemsókn og helgina eftir Sigfús & Eddu björk. Við áttum 2 frábærar helgar með góðum vinum þar sem var spilað golf, spil borðaður góður matur og almenn gleði. Svanhildur kíkti svo til okkar í 2 daga yfir Eurovision til að halda með okkur íslenskt Eurovison-Partý en Ísland komst ekki einu sinni áfram. Það skemmdi þó ekki gleðina. Guðrún fór sömu helgi á ráðstefnu í London og skemmti sér konunglega og um þessa helgi héldum við matarboð fyrir Þjóðverjaparið Timo & Christine. Eftir matarboðið var farið á sýninguna "Cirque du soleil", en það er einmitt sú sýning sem er alltaf í ríkissjónvarpinu um áramótin.

Annars er bara gott af okkur að frétta. Guðrún er að byrja í prófum og það styttist hratt í lokin hjá mér. Ég er kominn með um 60-70 bls í lokaskýrsluna mína og ég stefni að því að klára hana í ágúst. Ég geri ráð fyrir því að verja í september. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Hvað gerist eftir það er ekki alveg ljóst ennþá, en meira um það síðar.

Skrifad 6/06/2005 | Jón |