Ísland
Fréttir frá okkur. Eins og einhverjir gizkuðu réttilega á, þá erum við Guðrún flutt til Íslands. Við fluttum heim um áramótin og búum þessa stundina á hótel tengdó þangað til að við finnum íbúð. Um síðustu helgi fórum við til Frakklands til þess að sækja búslóðina okkar, bílinn og kveðja frábæru íbúðina okkar í Frakklandi. Það var erfitt og við vildum helst taka íbúðina með okkur heim í leiðinni.
Dvölin í Frakklandi var frábær. Við kynntumst mörgu skemmtilegu fólki og eignuðumst góða vini. Ferðuðumst um alla Evrópu og heimsóttum ótrúlega marga. Útiveran breytti ýmsu varðandi skoðanir og skilning. Mikill lærdómur að búa erlendis og fá alvöru samanburð við Ísland.
Okkur langar að þakka öllum sem komu í heimsókn til okkar, Þvílíkt magn af góðum stundum til að geyma í minningunni... og á myndum, já. Myndirnar koma að sjálfsögðu um helgina.
Framtíðin
Við Guðrún erum búin að fá vinnu. Við fengum bæði vinnu hjá fjárfestingafélögum, ég hjá GJ Fjármálaráðgjöf og Guðrún hjá Exista. Við erum mjög glöð að vera komin heim þrátt fyrir að sjá auðvitað eftir Frakklandi að mörgu leyti. Ég geri ekki ráð fyrir að við bloggum mikið hér í framtíðinni, en við sjáum til.
Til hamingju Ísland, með að við erum komin heim!