París
Ég skrapp á móti Guðrúnu til Parísar og við erum búin að eyða helginni hér saman. Guðrún flaug beint frá LA til Parísar. Við erum búin að hafa það virkilega gott hérna og gaman að koma aftur í íbúðina okkar í París. Í dag leggjum við svo í hann til Íslands og verðum á Íslandi a.m.k. fram yfir áramót. Hvað gerist eftir það er ekki 100% ákveðið ennþá, en við erum farin að móta hugmyndina, meira um það síðar.
Boston - Los Angeles - Las Vegas
Það hefur ekkert heyrst frá okkur lengi. Mér gekk mjög vel með vörnina á verkefninu mínu í Grenoble og er því búnn að ljúka Masters prógramminu mínu.
Boston
Við Guðrún hittumst yfir Thanksgiving í Boston í síðustu viku. Við fórum þangað til að heimsækja Lýð, Ragnheiði og strákana þeirra. Það var virkilega gaman að heimsækja þau og sjá Boston í fyrsta skipti. Lýður er í MBA prógrammi í MIT og ég fór að skoða skólann með honum, rosalega flottur skóli. Hluti af planinu var einmitt líka að heimsækja Möggu og fyrir einhverja undarlega tilviljun þá voru Rafn og Bjarney líka í Boston að skoða skóla. Við fórum því öll út að borða og kíktum á local nördabarinn í Cambridge þar sem að mat/drykk matseðillinn var í formi Lotukerfis og þakti hálfan vegginn.
Los Angeles - Las Vegas
Eftir þetta ákvað ég að fara með Guðrúnu til Los Angeles og vera hjá henni í tvær vikur. Hún fer í nokkur próf og klárar 8. des. Við höfum ýmis plön og núna erum við einmitt á leiðinni út. Við erum að fara að keyra til Las Vegas til að vera yfir helgina. Liz herbergisfélagi hennar Guðrúnar og Scott kærastinn hennar (sem reyndar býr í Detroit) eru að fara í brúðkaup þar svo við ákváðum að nýta tækifærið og skella okkur með þeim.
Annars þá skuldum við heilan helling af myndum, svona u.þ.b. 6 mánuði eða svo. Ætli ég hafi ekki tíma til að skella þeim inn.... tjah.... um helgina?