Farinn að heimsækja Guðrúnu
Ég er núna á leiðinni út úr dyrunum í flug til San Francisco og þaðan til L.A. Ég er búinn að eiga frábæra 10 daga hér á Íslandi og langar að þakka fyrir mig. Ég verð eina viku í L.A. kem tilbaka 6. okt og fer til Parísar 10. okt. Við Guðrún erum búin að skipuleggja ýmislegt þann tíma sem ég verð hjá henni, m.a. að fara og skoða Grand Canyon.

Skrifad 9/28/2005 | Jón |

Rigning
Á þriðjudaginn rigndi í fyrsta sinn síðan ég kom hingað út sem væri ekki í frásögur færandi nema út af því að ég er búin að vera hérna í mánuð. Sólskin og gott veður á hverjum degi það er alveg hægt að venjast þessu. Þennan sama dag var götunni sem ég bý í lokað (búið að vara íbúana við með 10 daga fyrirvara) því að það átti að taka upp atriði í mynd. Þeir gátu ekki tekið upp atriðið í rigningu þannig að götunni var líka lokað daginn eftir. Hver dagur af upptökum á bíómynd kostar frá 20.000$ og upp í 500.000$ dagurinn þannig að þeir voru frekar óheppnir. Þetta var samt bara lítil óháð bíómynd og engir frægir leikarar þannig að vonandi töpuðu þeir ekki of miklu. Kostar samt slatta að borga lögreglunni fyrir að loka götu og sitja og borða kleinuhringi.

Annars sá ég Paris Hilton á leiðinni í skólann í gær. Hún var í bílnum við hliðin á mér á ljósum. Ekki slæmur bíll silvurlitaður Ferrari. Hún keyrði ekki sérstaklega vel sem kemur kannski ekki á óvart þar sem hún er búin að vera með einkabílstjóra síðan hún fæddist.

Skrifad 9/22/2005 | Gudrun |

Viðburðarrík helgi
Á föstudaginn fór ég og horfði á Johnny Depp gera handa og fótaför í steypuna fyrir utan Grauman's Chinese Theater í Hollywood. Frekar magnað að sjá hann í eigin persónu. Eftir það fengum við Liz okkur hádegismat og keyrðum svo til Burbank þar sem Warner Brothers eru með stúdíó. Þar vorum við frá klukkan eitt og fram til ellefu um kvöldið að horfa á upptökur á þættinum Joey. Ég hefði aldrei trúað því hvað það er magnað að horfa á þá skapa þáttinn fyrir framan mann. Ef við í áhorfendasalnum hlógum ekki nógu mikið þá tóku þeir 15-30 mínútna hlé og endurskrifuðu atriðið og prófuðu aftur. Svo var frekar fyndið að horfa á svokallaða bloopers gerast í beinni útsendingu. Nágrannakona Joey í þáttunum rann og datt sem átti ekki að gerast og fólk var að klúðra línunum sínum og allir voru að grínast og skemmta sér. Þetta var sem sagt svona ekta Hollywood dagur.

Á laugardaginn fórum við svo á amerískan fótboltaleik hjá skólaliðinu okkar. Þeir eru sigurstranglegastir eins og ég hef áður minnst á og rosalega vinsælt lið. Dagurinn byrjar á svokölluðu tailgate-i sem byggist á því að fólk mætir allt upp í 7 tímum fyrir leik, leggur bílnum og grillar út úr skottinu á bílnum sínum. Þannig að það er fólk út um allt að grilla og skemmta sér og hita upp fyrir leikinn. Við fórum á örlítið þróaðara tailgate þar sem var grillað fyrir okkur á lóðinni í skólanum. Eftir það labba allir á leikinn. Í þetta sinn voru 90.411 áhorfendur á leiknum og allir að halda með liðinu mínu (Er mjög stolt af þeim). Ég held að ég eigi eftir að vera aðdáandi þeirra það sem eftir er. Það er alveg magnað að fylgjast með svona leik. Til dæmis í lúðrasveitinni eru 250 manns allir í búningum að mynda stafi á vellinum fyrir leikinn og hestur sem er lukkudýr liðsins með manni í fullum rómverskum klæðum (liðið heitir the Trojans). Stemmingin var eins og að vera viðstaddur upphafsatriði ólympíuleikanna. Síðan tók við leikurinn sjálfur og að sjá átökin og mögnuðu tilþrifin var alveg frábært.

Á sunnudaginn fórum við svo á ströndina í Malibu. Sem sagt mjög góð helgi :o)

Skrifad 9/20/2005 | Gudrun |

Arnar í heimsókn, skýrslan kláruð og Íslandsheimsókn
Í fyrsta lagi þá var helgin alveg mögnuð með Arnari. Við skemmtum okkur konunglega, skoðuðum sigurbogann, Champs-Elysées, Eiffel turninn og fleira, borðuðum á grænu sósunni og Buddha-bar, spiluðum á gítar og spjölluðum mjög mikið. Helgin var í einu orði sagt frábær! Takk fyrir mig Arnar!

Í öðru lagi þá kláraði ég skýrsluna í gær og er núna að skrifa abstract fyrir næstu vetnis-ráðstefnu sem verður í Lyon á næsta ári. Ég klára það á morgun og þá er lítið fyrir mig að gera þangað til að ég ver. Vörnin verður líklegast um miðjan október svo.... Ég er að koma heim í 3 vikna frí á föstudaginn næsta. Ég ætla að reyna að komast til Guðrúnar í eina viku eða svo á þessu tímabili en það á eftir að skýrast hvort það gengur upp. Hlakka til að sjá sem flesta heima.

Eftir vörnina byrjar svo formlega doktorsnámið hjá mér. Ég er þegar skráður í námið og í raun ekkert að gera meira en að klára vörnina og mæta hress í nýja skólann þegar ég er búinn að því. Ég mun líklegast taka 2 kúrsa til að byrja með í electrochemistry og öðru tengdu rafgreiningu. Hvort ég hafi möguleika á að fara til Stanford eða ekki er enn ekki orðið ljóst.

Skrifad 9/14/2005 | Jón |

LA Dodgers og afmæli
Ég fór í gær á minn fyrsta hafnaboltaleik. Við fengum miða alveg við völlinn í svokallaðri home-run section. Það var svaka stuð að sjá svona leik. Þetta er samt ekki alveg mest spennandi íþrótt í heimi og staðan endaði 3-1 fyrir San Diego Padres ef einhver hefur áhuga. En aðalatriðið var að fara á leikinn og heyra þjóðsöng Bandaríkjanna sunginn í byrjunni, kaupa hnetur og bjór og taka þátt í að hvetja liðið áfram ásamt 40.000 heitum aðdáendum liðsins. Ég hlakka mikið til þess að fara á amerísku fótboltaleikina hjá skólaliðinu mínu því að þeir eru taldir sigurstranglegastir í ár. Ég er búin að sjá skólahljómsveitina vera að æfa og hlakka til að sjá klappstýrurnar á leiknum sjálfum. Þetta er eins amerískt og það gerist.

Á fimmtudaginn átti ég svo afmæli og stelpan sem ég leigi með, Liz, bakaði fyrir mig ekta súkkulaðiköku þannig að ég fékk köku og pakka á afmælinu mínu. Svo fór ég í tíma um kvöldið og gestafyrirlesarinn var Henry Winkler sem lék The Fonze í Happy Days. Hann er líka búin að leika í fullt af myndum og þáttaröðum síðan þá. Hann reitti af sér brandarana og sagði skemmtilegar sögur úr bransanum. Þetta var bara fínasti afmælisdagur.

Í kvöld ætlum við svo út að borða og kíkja á nýjasta klúbbinn í bænum sem heitir LAX. Það er aldrei að vita hvern maður rekst á þar. Annars er Los Angeles frekar fyndin borg, ég fór að skokka í gær hérna í hverfinu og fyrir utan eitt húsið hérna nálægt var fullt af túristum með myndavélar að bíða eftir einhverri stjörnunni. Ég þarf greinilega að kaupa kort af því hvar stjörnurnar búa til að fletta upp nágrönnunum.

Skrifad 9/10/2005 | Gudrun |

Fleiri afmæli
Í dag á Guðrún afmæli, en vinsamlegast ekki senda SMS eða hringja fyrr en eftir kvöldmat í fyrsta lagi, það er 7 tíma munur á Íslandi og L.A. :)

Þetta þýðir að við erum 53 ára í dag. Skandallinn er að við höfum ekki haldið upp á afmælið okkar saman síðan við áttum 47 ára afmæli með látum í Brekkugerðinu 2002. Það hefur hreinlega ekki verið hægt að halda veislur á þessum tíma fram að þessu. Á næsta ári verður væntanlega einfaldara fyrir okkur að koma heim og þess vegna er því lofað hér með að halda eðal afmælisveislu á 55 ára afmælinu okkar 2006.

Fleiri fréttir eru að Arnarar er að koma í heimsókn til mín í dag og verður yfir helgina. Það er ýmislegt planað fyrir helgina og er nokkuð ljóst að það verður stuð!

Skrifad 9/08/2005 | Jón |