Istanbul
Guðrún fór til Íslands á föstudaginn og nær því rúmlega viku á Íslandi. Ég kem á föstudaginn fer í brúðkaupið á laugardaginn og svo förum við aftur út til Frakklands á sunnudaginn. Um leið og við komum til Parísar á sunnudaginn förum við til suður Frakklands að hitta foreldra mína sem bíða eftir okkur í Cannes.
Annars er ég í þessum töluðu orðum á leiðinni út úr dyrunum, út á flugvöll og til Istanbul á ráðstefnu um vetni. Á þessarri ráðstefnu fæ ég líka að vera með munnlega kynningu svo þetta verður mjög gaman. Ég hlakka til að sjá sem flesta á föstudaginn!
Skólinn búinn
Ég var í síðasta prófinu sem ég mun taka í þessum skóla á þriðjudaginn. Mér gekk bara mjög vel sem er alltaf gott svona í síðasta prófinu. Ég ákvað síðan að nýta daginn vel fór niður í bæ og kíkti á útsölurnar. Allt hérna er á 50-70% afslætti þannig að það er mjög gaman að versla og ódýrt svona til tilbreytingar. Síðan um kvöldið fórum við Jón Þór í grillveislu heima hjá þýska vinaparinu okkar. Þetta var kveðjupartý fyrir okkur sem erum að fara fyrr heim. Skólinn er ekki formlega búinn fyrr en 16. júlí en allir mínir kúrsar eru búnir núna. Allir áttu að koma með einhvern rétt frá sínu landi. Við Jón komum með í forrétt graflax með graflaxssósu á ristabrauði. Það voru allir svakalega hrifnir af íslenska laxinum. Við komum svo með kryddaðar kjúklingabringur á grillið enda ekki mikið til af séríslenskum mat hérna í búðunum sem hægt er að skella á grill. Partýið var mjög vel heppnað og allir rosalega ánægðir. Þýska parið var búið að bjóða okkur Jóni annað gestaherbergið í húsinu þannig að það var ekki langt að fara þegar allir gestirnir fóru heim um hálf fjögur. Jón hetja mætti svo í vinnuna klukkan 9 daginn eftir.
Ég er að pakka núna enda á leiðinni til Íslands á morgun. Ég verð á Íslandi frá áttunda til sautjánda júlí. Frekar stutt stopp en ég var mjög ánægð með að ná að koma heim.
Heiða er að koma í heimsókn til mín núna klukkan eitt og ætlar að fylgja mér heim á morgun. Við ætlum að nýta síðasta daginn hérna í París vel, kíkja á útsölurnar og kaffihúsin.