Barcelona
Við komum til Fanneyjar hér í Barcelona á mánudagskvöldið. Slöppuðum af og löbbuðum allan gærdaginn um borgina. Planið er að kíkja á ströndina í dag. Það er um 23°C hiti hér núna og sól. Eftirmiddag á morgun ætlum við að keyra aftur norður til Frakklands og fylgja vesturströndinni heim. Líklegast komum við til með að stoppa í Bordeaux og gista eina nótt þar. Við erum búin að taka rosalega mikið af myndum. Ferðasaga og myndir koma um helgina.
Skrifad 4/27/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Spring break
Nu a Gudrun fri i eina viku og vid akvadum ad ferdast um Frakkland. Vid erum nuna stodd hja vinafolki i sudur frakklandi rett hja Marseille. Vid gistum her a vinekrunni theirra, um 5km fra Midjardarhafinu. I dag aetlum vid liklegast ad keyra eitthvad lengra, jafnvel alla leidina til Barcelona og heilsa upp a Fanney. Meira, mikid meira sidar.
Skrifad 4/25/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Tannsi
Jæja það kom að því. Ég braut um daginn gamla fyllingu og þurfti nýja. Í íbúðinni við hliðina á okkur vinnur tannlæknir. Hann er með stofu í húsinu. Þetta er nokkuð algengt hér í Frakklandi, það er einmitt líka læknir á sömu hæð! Ekki langt að fara.

En hvað um það. Ég fór til hans í gær til að láta laga þetta. Stofan er öll ný, allt nýjasta tækni og stafrænt (já ég er enn að tala um Frakkland). Ég var búinn að spjalla við hann áður til að fullvissa mig um að allt væri í lagi og skoða mig um.

Þegar ég mætti til hans í gær þá sagði ég honum að ég hafi ekki farið til tannlæknis í yfir 2 ár því síðasta reynsla hefði verið frekar slæm. Tveggja tíma endajaxlatogun, sögun, sleggjunotkun, fótaspyrna með tilheyrandi blóðslettum og svo eftirá-uppköstum, magakveisu og sauma-rifnings skemmtilegheitum vegna of sterkra sýklalyfja. Hann hlustaði á bjagaðar útskýringar mínar á Frönsku og virtist skilja mig ósköp vel. Ég settist því niður, opnaði munninn og byrjaði að svitna.

Þessi ágæti tannlæknir virðist hafa tekið ákvörðun um að reynslan hjá sér ætti ekki að verða slæm. Hann stakk því deyfingarnálinni í og byrjaði sprauta... Og það var aldeilis sprauta! Hann ætlaði hreinlega ekki að hætta að sprauta! Eftir svona 2 mínútur af deyfingarpotun sagði hann: "Jæja nú bíðum við bara rólegir".

Ég byrjaði fljótlega að finna tunguna dofna (ekki skánaði Franskan við það), svo neðri vörina og efri vörina. Ég hugsaði með mér að þá væri þetta nú komið en hann vildi ekki byrja strax. Fljótlega fór ég að finna vinstra augað á mér hegða sér undarlega og eyrað líka og það leið ekki á löngu þangað til nánast öll vinstri hliðin á andlitinu var sofnuð. Þá hófst hann handa.

Viðgerðin sjálf gekk bara vel og ég fann ekki mikið fyrir. Hann átti það til að spyrja mig um hitt og þetta á milli tólaskipta og ég reyndi að svara en gafst fljótt upp á því, því að vandræðalega brosið hans við svörunum mínum gaf til kynna að ég væri í raun ekkert endilega að tala Frönsku. Ég tók líka eftir því að Franskan hans fór nú að hljóma hálf undarlega og ég bókstaflega hætti að skilja manninn!

Þegar þetta var allt búið skolaði ég munninn með skolvatninu. Vatnið átti þó furðu erfitt með að leka ekki út á deyfðu hliðinni. Eftir skolun stóð ég upp, skrifaði undir reikninginn, slefaði svolítið á borðið og krönglaðist alla leiðina heim (næstu dyr). Ég eyddi restinni af kvöldinu í að slefa á helstu húsgögnin okkar og láta mér hlakka til tímans sem ég á pantaðan í næstu viku!
Skrifad 4/13/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Níu ár sama og níu ár?
Þetta er bara of magnað til að skoða það ekki í samhengi:
Frétt af mbl.is #1
Frétt af mbl.is #2
Skrifad 4/11/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Ráðstefna
Á mánudaginn fór ég til Grenoble á ráðstefnu um varmaskipta. Ég sendi abstract (útdrátt) til skipuleggjanda ráðstefnunnar fyrir nokkru og fékk tækifæri á því að tala á ráðstefnunni. Ég átti að tala beint á eftir Keynote-speaker, nema hvað, hann komst ekki. Það er því alveg ljóst að ég var keynote speaker á þessarri ráðstefnu, ekki spurning. Kynningin mín gekk mjög vel og ég er ánægður með ráðstefnuna. Ég sendi annað abstract til skipuleggjanda vetnisráðstefnu í Istanbul. Ég er búinn að fá svar um að mega vera með kynningu þar líka og mun fara þangað 13-15 júlí næstkomandi.

Annars nýtti ég tækifærið og heilsaði upp á Munda & Svanhildi örstutt. Mér var reyndar boðið í mat með þeim og Georges sem gekk ekki, en það var gaman að hitta þau öll aftur.

Guðrún er þessa stundina í 6 tíma prófi. Þessi próftörn fer bráðum að klárast, en henni hefur gengið rosalega vel fram að þessu.
Skrifad 4/8/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |