Páskar
Við áttum mjög góða páska. Foreldrar Guðrúnar komu í heimsókn og voru hjá okkur fram á mánudaginn. Annars er allt rólegt hjá okkur þessa dagana. Guðrún er á fullu í prófundirbúningi og ég er að fara að tala á ráðstefnu um varmaskipta í Grenoble í næstu viku.
Linkur daxins: GoogleZon!
Jibbý
Mér gekk vel í prófinu áðan. Ekki leiðinlegt að koma út úr prófi út í 21 stiga hita og sól enda er ég í sólskinsskapi núna. Við Jón héldum upp á að það er föstudagur í dag með því að rölta niður á einn af uppáhalds veitingastöðunum okkar sem heitir Buffalo Grill. Við erum búin að skipuleggja vel morgundaginn. Þegar við vöknum þá verður sko steikt egg og beikon í morgunmat og síðan verður lagt í hann niður í bæ til að njóta veðurblíðunnar. Um kvöldið förum við svo í teiti hjá Timo og Christine (parinu frá Þýskalandi). Það verður fjölmennt og góðmennt hjá honum því að hann er búinn að bjóða um 30 manns frá a.m.k. 17 löndum.
Vorið er komið
Hérna í París er búið að vera á bilinu 15-18 stiga hiti og á að vera fram yfir helgi. Það er ótrúlegt hvað fólk tekur mikið við sér þegar veðrið er svona gott. Núna eru öll kaffihúsin full af fólki og allir úti í göngutúrum. Nema ég því að ég er að læra undir próf í Corporate Finance sem ég er að fara í á morgun. En okkur er boðið í teiti næsta laugardag hjá þýska parinu sem við þekkjum til að fagna vorkomunni og próflokum. Að minnsta kosti fyrir þessa viku því að héðan í frá og fram til 15. apríl fer ég í próf í hverri viku.
€ og ESB
Varð bara að linka hér í frétt í ríkissjónvarpinu þann 8. mars. Smelltu hér fyrir fréttina. Aðein 8 af 25 ríkjum uppfylla skilyrði um fjárlagahalla og opinberar skuldir, og þá er ekki einu sinni minnst á skilyrði um verðbólgu. Fjársektum hefur verið beitt á minni ríki en stærsu hagkerfin vilja ekki láta sekta sig.
Þetta er grundvöllurinn að skoðun minni á Evrunni. Evran mun aldrei ganga til lengdar vegna þess að þessum skorðum er ekki hægt að fylgja og það mun grafa undan gjaldmiðlinum. Þetta sýnir líka greinilega hvernig komið er fram við minni ríki innan sambandsins. Ég mjög bágt með að skilja að stjórnmálamönnum á Íslandi detti í hug að ganga í sambandið, ef ekki bara fyrir þessi rök. Þá er ekki einu sinni búið að minnast á stór framtíðarvandamál varðandi styrkjakerfi sambandsins, sem er 50% af veltu þess, og lífeyrisvandamálin í evrópulöndunum. Ísland... Best í heimi!
Foreldrarnir í heimsókn
Það hefur ekkert heyrst frá okkur! Fjölskyldan mín var í heimsókn og tíminn var vel nýttur í það helsta hér í París. Það var reyndar mjög kalt á meðan þau voru í heimsókn, snjóaði og var hitinn næstum allan tímann undir frostmarki. Það hefur víst ekki verið jafn kalt í Frakklandi í 35 ár.