Frábær helgi!
Við vorum að koma heim eftir aldeilis frábæra helgi. Við mættum til Grenoble um 10 leitið á föstudaginn og var restin af kvöldinu nýtt í gott spjall og spil. Síðan náðum við ágætum 5 tímum af svefni áður en við vöknuðum aftur, borðuðum dýrindismorgunmat hjá Svanhildi og Munda og lögðum svo af stað á skíði. Við vorum mætt upp í fjall klukkan níu um morguninn ásamt Munda & Svanhildi og Torfa & Evu og síðan var skíðað til klukkan fjögur í glampandi sólskini. Torfi og Eva eru vinafólk Munda og Svanhildar og verða í heimsókn hjá þeim næstu 10 daga. Þau eiga aldeilis von á góðu því að Mundi og Svanhildur eru frábærir gestgjafar eins og góðærisbumba helgarinnar og sólheimabrosið á okkur bera með sér. Takk kærlega fyrir okkur!
Skrifad 2/27/2005 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Frí
Við erum búin að vera í fríi alla vikuna og njóta vel. Það er meira að segja búið að snjóa í París, eiginlega fyrsti almenninlegi snjórinn síðan við komum út. Það er samt varla að hann teljist með því að hann endist bara á trjám og bílum. En það er samt aldeilis ekki snjóleysi á staðnum sem við erum að fara til næst því að við erum einmitt á leiðinni út úr dyrunum á snjóbretti í Grenoble.
Skrifad 2/25/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Neverland!!!
Í rúmlega mánuð er ég búinn að reyna að fá uppfærslu á reikningi sem ég á hjá www.etrade.com. Ég er búinn að senda þeim marga pósta og hringja þrisvar. Svarið sem ég fékk í morgun var gull. Hér kemur hluti úr því:

"Our records show we have your margin/option form and the Mr. Choi tried to contact you in the Neverlands but was unable to reach you."

Ég þarf greinilega að tala við Pétur Pan um símaþjónustuna mína!
Skrifad 2/14/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Hádegismatur
Þó að það sé hægt að kvarta yfir því hvernig Frakkar keyri, hversu hrokafullir þeir séu stundum og hvernig "administration" (lesist með frönskum hreim) virkar hér þá má ekki gleyma eftirfarandi: Frakkar kunna að njóta lífsins. Ég var að enda við að koma úr 2,5 tíma, fimm-rétta hádegismat með yfirmanni rannsóknarstofunnar og starfsfélögum. Við sátum, spjölluðum og borðuðum góðan mat. Þessu gleyma Íslendingar oft, án þess að vilja með minnsta hætti gera lítið úr dugnaði Íslendinga, þá er þetta líka mikilvægt. Eftir að ég flutti til Frakklands hefur stress minnkað úr öllu valdi og maginn lagast til muna. Ég er farinn að skilja betur af hverju Frakkar eru svona langlífir.
Skrifad 2/9/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Magga í heimsókn
Magga kom í heimsókn til okkar þarsíðustu helgi og var fram á þriðjudag. Helgin var frábært og tíminn nýttur vel. Ég reyndi að setja inn myndi fyrir nokkrum dögum en það gekk ekki, athuga aftur í vikunni.Annas er mjög mikið að gera hjá okkur núna, ég er að klára enn eina skýrsluna en allt sem ég er búinn að skrifa fram að þessu fer í lokaskýrsluna mína svo þetta kemur.

Þegar ég kveikti á sjónvarpinu í gær og fletti í gegnum stöðvarnar þá heyrðu ég allt í einu íslensku. Gott ef sjónvarpsstöðin l'arte var ekki að sýna 101 Reykjavík. Myndin hélt athygli minni í 5 mín. Ég hef ekki séð hana og eftir þessar 5 mín er nokkuð ljóst að ég mun ekki sjá hana.
Skrifad 2/8/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |

Fyrsta grein stjórnarskrárinnar
Þó ég sé ekki sammála Bush í því hvernig hann er að höndla utanríkismálin hef ég tröllatrú á Bandaríkjunum og þeirri hugsjón sem landið stendur fyrir, Frelsi. Ég trúði ekki eigin augum þegar ég las þetta.

"Meira en þriðjungur þeirra um 100.000 nemenda sem þátt tóku í könnuninni sögðust telja að fyrsta grein stjórnarskrárinnar gengi „of langt“ í að tryggja málfrelsi, frelsi fjölmiðla, frelsi til trúariðkunar og samkomuhalds."
Skrifad 2/2/2005 | Jón Þór Sigurvinsson |