Skólinn
Skólinn hjá mér er búinn að fara frekar rólega af stað miðað við brjálæðið í fyrra. Í dag og á morgun er ráðstefna þar sem 120 fyrirtæki mæta á svæðið til að ráða nemendur úr skólanum og kynna sig sem atvinnurekandur.
Í kvöld erum við að fara í heimsókn til þýska vinar okkar. Hann er með vin í heimsókn sem er að vinna hjá NASA og hann vill endilega að við hittum hann. Igor og Sonja verða líka í kvöld en Igor er einmitt eins og nafnið gefur til kynna frá Rússlandi og konan hans er frá Indlandi. Við erum búin að kynnast þeim svolítið vel og kunnum mjög vel við þau. Við vorum að bera saman brandara í síðasta partýi þ.e. hver einstaklingur þurfti að segja týpískan brandara frá sínu landi og það var frekar fyndið hvað húmorinn er greinilega svolítið misjafn eftir löndum.
Nýjar myndir & video
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna. Ég setti líka nokkur video á síðuna, eins og fyrr þarf nýjasta divx til að spila þau.
Video 1 - Hvert erum við að fara?
Video 2 - Fyrsta ferðin
Video 3 - Guðrún að brettast
Helgin var frábær
Helgin var svona líka frábær. Við keyrðum af stað beint eftir skóla hjá Guðrúnu og vorum komin til Svanhildar rétt um níuleytið. Þá var slappað af og spilað. Um morguninn drifum við okkur svo á skíði í 3-4°C hita, sól og logni, borðuðum góðan mat í hádeginu og nutum þess að skíða fram að lokun. Þegar við komum heim var kveikt á racletta græjunni og tekinn góður tími í að borða og spjalla, eftir það var spilað eitthvað frameftir og vaknað daginn eftir og farið aftur á skíði í enn betra veðri. Á sunnudagskvöldið var spilað Matador á frönsku sem vakti mikla lukku. Svo var lagt í hann til Parísar á mánudagsmorguninn. Sem sagt alveg fullkomin helgi, Svanhildur átti afmæli á mánudaginn og í tilefninu var borðaður AfmælisKebab, takk aftur fyrir snilldar helgi Svanhildur. Ég geri ráð fyrir að henda inn myndum í kvöld.
Skíðahelgi
Núna er vinnuvikan að verða búin og ég vonandi að verða búinn með stóra skýrslu hér í vinnunni. Eftir vinnu í dag ætlum við Guðrún að keyra til Grenoble til Svanhildar og gista þar fram á mánudag. Við ætlum öll saman á bretti á laugardag og sunnudag, kvöldin verða væntanlega vel nýtt að borða góðan mat og spila. Guðrún á frí á mánudag og þriðjudag og ég tek mér frí þessa daga þannig að það er löng og skemmtileg helgi framundan.
Myndir
Nýjar myndir frá bústaðarferðinni og áramótapartýinu eru komnar á netið. Einnig lítið video frá heimsókn okkar til Fúsa, til þess að spila það þarf fyrst að downloada nýjasta divx.
Komin tilbaka
Við komum aftur til Frakklandsins í gær. Þessi Jól voru alveg frábær, en því miður var stoppið allt of stutt. Hver dagur var vel nýttur og samt vantaði tíma til að hitta alla. Nú tekur daglega lífið við aftur, skólinn hjá Guðrúnu byrjar á morgun og vinnan hjá CEA er þegar byrjuð hjá mér. París tók mjög vel á móti okkur í gær með 9°C hita, sól og logni.