Jólin eru komin í París
Um helgina var kveikt á jólaljósunum í París þannig að núna er orðið mjög jólalegt hérna. Við skruppum á laugardaginn á jólamarkað sem er við hliðin á húsinu okkar. Hann opnaði núna um helgina. Á markaðnum var hægt að kaupa hluti eftir listamenn í nágrenninu, smákökur, rauðvín og flest tengt jólum. Á markaðnum var spiluð jólatónlist sem hljómar öll mjög kunnuglega enda nánast sömu jólalög og heima nema bara talsett yfir á frönsku í stað íslensku. Það er mjög gaman að heyra þessi lög á frönsku.
Ég kláraði risastórt verkefni klukkan fjögur í nótt og skilaði því af mér í morgun. Verkefnið var upp á 52 blaðsíður. Litli prentarinn sem við keyptum er sko búinn að vinna fyrir kaupinu sínu. Lokaprófin byrja svo í næstu viku en það er nóg að gera þangað til því að hópurinn minn á eftir að skila sjö hópverkefnum. Við ætlum að gera okkar besta til að klára þau í þessari viku en það lítur út fyrir að það sé frekar mikil bjartsýni.
Skrifad 11/30/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Madame, monsieur
Í hádegismatnum í dag kom upp skemmtileg umræða um undarleg nöfn í frakklandi, prófessorinn minn í Grenoble heitir t.d. Bontemps (Gottveður/Góðirtímar). Svona nöfn eru ekki algeng en fyndið fjölskyldunafn kom upp sem ég verð að deila með ykkur. Fjölskyldunafnið er Monsieur (Herra). Í frakklandi er oft spurt um nafn á eftirfarandi hátt "Monsieur...? (Herra...?) og þá á viðkomandi að segja fjölskyldunafnið sitt. Viðkomandi maður þurfti því alltaf að svara á eftirfarandi hátt. Spurt um nafn: "Monsieur...?" svar: "Monsieur!", nú þá var venjulega spurt um nafn aftur og þannig koll af kolli. Jafnvel enn skemmtilegra var þegar konan hans þurfti að svara. Þá var hún spurð: "Madame...?" svar: "Monsieur!!!". Þetta er hægt að misskilja á svo marga vegu að ég ætla ekki einu sinni út í það.

Þetta var frönskuhorn daxins. Góða helgi.
Skrifad 11/26/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Síðasta miðsvetrarprófið
Í dag er síðasta miðsvetrarprófið hjá Guðrúnu. Jólaprófin byrja svo eftir 10 daga, þetta er ansi þétt hjá henni. Annars er lítið af okkur að frétta. Það er farið að kólna og er hitinn á morgnana yfirleitt um 10°C. Jólaskreytingar í París eru á fullu og þegar við Guðrún höfum tíma til að skreppa í jólagjafarúnt tökum við örugglega nokkrar myndir og setjum á síðuna.
Skrifad 11/24/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Ég straujaði um helgina
Það gera sér ekki allir grein fyrir því að það þarf endrum og eins að strauja tölvur. Um helgina straujaði ég mína og viti menn hún er eins og ný. Go figure!
Skrifad 11/22/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Matarboð
Klukkan hjá okkur er núna að verða 6 og við vorum að koma heim eftir verslunarleiðangur. Það er matarboð hjá okkur í kvöld og tvö pör, annað frá Singapúr og hitt frá Þýskalandi eru að koma í mat. Við erum að hlusta á íslenska útvarpið í gegnum netið og erum aldeilis farin að komast í jólaskap. Það er ekki byrjað að spila jólalög í útvarpinu hérna en þeir eru byrjaðir að setja upp jólaskreytingar samt ekki byrjaðir að kveikja á þeim.

Annars er ennþá allt brjálað að gera í skólanum hjá mér. Tvö stór verkefnaskil í næstu viku, eitt miðsvetrarpróf og þrjú hópverkefni. Ég er ekki alveg að sjá hvenær ég á að hafa tíma til að sofa en þetta reddast samt vonandi allt.
Skrifad 11/20/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Snillingar
Lítið að frétta af okkur, bara lærdómur og aftur lærdómur. Ég er að klára fyrstu formlegu ritgerðina mína sem ég kem til með að kynna á ráðstefnu í Grenoble á næsta ári. Hins vegar er yfirskriftin í dag "snillingar" svo ég ætla að segja ykkur frá nokkrum. Í fyrsta lagi, Guðrún sem hefur verið að brillera í náminu sínu. Hún er bún að fá úr þremur prófum þar sem að hún var hæst í tveimur og gekk mjög vel í því þriðja. Guðrún fékk sem sagt 10 í tveim prófum. Hún hefur aldeilis unnið fyrir þessu svo það er ekki úr vegi að monta sig aðeins af henni.

Fleiri snillingar eru hljómsveitin Jeff Who. En fyrir þá sem þekkja ekki til þá er það hljómsveitin hans Ásgeirs. Ég ætla að setja hér á síðuna eitt lag með þeim. Smellið hér til að sækja lagið. Þetta er hljómsveit sem við eigum örugglega eftir að heyra meira af.
Skrifad 11/19/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Ég get ekki orða bundist
Ég geri hér með undantekningu á því að ræða ekki stjórnmál á þessarri síðu. Ég bara trúi ekki ástandinu heima í sambandi við verkfall kennara. Hér áður fyrr skildi ég vel verkföll hjá kennurum, þeir höfðu slæm kjör m.v. aðra starfsmenn ríkisins. Ég studdi þá heils hugar í verkföllum sem kostuðu t.d. jólapróf í mínum skóla. Mörgum verkföllum og stórkostlegum launahækkunum seinna lítur málið öðrvísi út.

Kennarar telja sig þurfa á launahækkunum að halda og mér dettur ekki í hug að gagnrýna það, þeir hafa rétt á að bæta kjör sín eins og allir aðrir. Ekkert réttlætir samt þessa hörku og þennan ósveigjanleika sem hefur verið í málinu fram að þessu.

Nýútskrifaður grunnskólakennari (24 ára) hefur 170þ. kr á mánuði í laun. MeðalGrunnlaun grunnskólakennara eru 210þ. kr á mánuði. Meðallaun grunnskólakennara eru 257þ. kr á mánuði. Þetta er staðan eins og hún er í dag. Gott og vel, hvað eru kennarar að fara fram á? Gjörsamlega ófrávíkjanlegar kröfur virðast vera: Meðallaun talsvert yfir 300þ. kr! Þetta þýðir 36% útgjaldaaukningu fyrir sveitarfélögin!

Hvað hefur kennurum verið boðið. 16% hækkun meðallauna sem setur meðallaun í rétt tæp 300þ. auk þess lækkun kennsluskyldu, þetta þýðir um 26% aukningu á útgjöldum fyrir sveitarfélögin. Þetta finnst kennurum of lítið og segja að verðbólgan muni éta hækkunina upp. Ef þeir eru sannfærðir um það þá hefðu þeir einfaldlega átt að semja um minni minnkun kennsluskyldu og meiri launahækkun!

Hvað gerðist síðan eftir að miðlunartillagan var felld? Sveitarfélögin settu einmitt fram þá tillögu að vinnutíminn skyldi samræmdur við annað háskólamenntað fólk hjá ríkinu! Þ.e. hætta við minnkun kennsluskyldu (sem var einmitt barist hart fyrir að auka 2001). Hvað gerðu kennarar? Þeir lögðu fram “málamiðlunuartillögu”. En viti menn hún hljóðaði upp á 36% útgjaldaaukningu fyrir sveitafélögin!

Eftir að grunnskólakennarar fóru undir sveitafélögin hefur í öllum kjarasamningum komið fram krafa á aukin fjárútlát af hálfu ríkisins. Það gerðist 1996, 2000 og núna 2004.

Það er oft talað um hvað kennarar beri mikla ábyrgð og því eigi þeir betra skilið en þessi lélegu laun. Það er hárrétt, þeir bera mikla ábyrgð. Heila málið er, að það er einfaldlega búið að bjóða þeim svo miklu meira en hægt verður að bjóða nokkrum öðrum í þessum kjarasamningum. Hvað myndi gerast ef ríkið kæmi að málinu og kennurum yrði veitt þessi 36% hækkun á launum? (ég segi 36% vegna þess að færri vinnudagar eru líka launahækkun). Forsvarsmenn verkalýðssambanda hafa komið því skýrt á framfæri, að þeir muni ekki sitja aðgerðarlausir ef kennarasamningarnir stefni stöðugleikanum og rauðum strikum í hættu. Eiga allir að fá sömu eða svipaða launahækkun og kennarar? Hvað gerir verðbólgan þá?

Rétt í þessu slitnaði upp úr samningaviðræðum kennara og sveitarfélaga og næsti fundur er eftir 2 vikur. Börnin sitja heima á meðan kennarar syngja "Áfram áfram áfram kennarar, við gefumst ekki upp". Hvernig væri að kennarar sýndu það af sér að þeir standi undir þeirri ábyrgð sem þeim er veitt með því að lækka kröfur sínar og stöðva þetta verkfall.
Skrifad 11/10/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Löng helgi
Nú fer að styttast í að langa helgin byrji hjá okkur. Mér gekk alveg rosalega vel í prófinu í gær þannig að ég er mjög ánægð. Nú er bara eftir eitt miðsvetrarpróf í hagfræði og tvö stór verkefni og þegar það er búið þá fer að styttast í jólaprófin þannig að það er búið að vera frekar mikið að gera hjá mér. Ég ætla að nýta helgina vel í að slappa af og læra.

Ég verð með stelpukvöld á föstudaginn þá ætlum við nokkrar stelpur úr skólanum að hittast, elda saman, spjalla og kíkja á næturlífið í París.

Vinnuálagið hjá mér jókst um heilan helling fyrir viku síðan því að þá hætti einn strákur í skólanum og hann var með mér í hóp þannig að nú erum við eini hópurinn sem er bara með þrjá meðlimi. Það eru að meðaltali 2,5 hópverkefni á viku þannig að það munar um einn meðlim.
Skrifad 11/10/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Enn eitt prófið
Guðrún er í næst síðasta miðsvetrarprófinu sínu í dag og það lítur bara vel út. Framundan er svo löng helgi þar sem það er frí á fimmtudaginn og föstudaginn. Helgin verður væntanlega mest nýtt í lærdóm en við ætlum líka að kíkja eitthvað inn í París. Það er fín veðurspá fyrir helgina. Á fimmtudaginn 11. nóv er haldið upp á endalok fyrri heimstyrjaldarinnar og þá verða alls konar hátíðarhöld.
Skrifad 11/9/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Miðsvetrapróf
Þessa stundina er Guðrún í prófi í Statistics. Henni gekk mjög vel í síðasta prófi og er einnig mjög vel undirbúin undir þetta próf. Hún á 2 próf eftir eftir þetta og á meðan þessi próftörn er í gangi eru full kennsla og verkefnaskil í gangi. Þó að það sé komin helgi þýðir það því ekki frí fyrir okkur, Guðrún lærir og ég þarf að klára skýrslu fyrir mánudaginn.
Skrifad 11/5/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Lýður & Ragnheiður
Lýður, Ragnheiður og Þorgeir litli fóru heim í dag eftir nokkra frábæra daga í heimsókn. Þeim þótti borgin frábær og sú fallegasta sem þau hafa séð. Tíminn var vel nýttur til að spila, borða góðan mat og versla.

Annars eru hér nokkur myndbönd sem við tókum í golfferðinni okkar þegar Brynjar og Gunni voru í heimsókn (best að hægrismella og velja "save as"):
--> Video 1 <--
--> Video 2 <--
--> Video 3 <--
Skrifad 11/1/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |