Myndir
Jæja myndirnar eru komnar á netið. Guðrún fór í fyrsta prófið sitt í gær og stóð sig rosalega vel, enda búin að vinna fyrir því. Nú er hún í fríi fram á þriðjudag og næsta próf hjá henni er á föstudaginn.

Annars þá voru Mundi & Svanhildur hér í París, foreldrar þeirra gistu á hóteli rétt hjá okkur og þau gistu hjá okkur. Alltaf gaman að fá þau í heimsókn. Lýður og Ragnehiður voru að gifta sig á þriðjudaginn og komu í brúðkaupsferð til okkar og verða fram á mánudag. Nú ætlar Guðrún að taka allavega daginn í dag í frí og njóta þess að vera með þeim í París.

Svo er komið á hreint að við Guðrún komum til Íslands 20. des og verðum fram á 2. jan.
Skrifad 10/28/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Brynjar farinn heim
Gunnar fór heim á mánudaginn síðasta en Benji framlengdi um eina viku því vinkona hans frá Canada gat komið í heimsókn. Þau eru búin að skoða þó nokkuð af París á daginn og svo var yfirleitt borðað og spjallað á kvöldin, þ.e. ef Guðrún var ekki að læra. Í gær var t.d. kíkt niður í bæ og á föstudaginn eldað heima og spilað. Brynjar fór svo heim í morgun.

Það er rosalega mikið að gera þessa dagana hjá Guðrúnu, hún er að læra allar helgar og oft eftir skóla líka. Það er mjög mikið því skólinn er alltaf frá kl 8 á morgnana til 16-18 á kvöldin. Nú sitjum við hér við borðstofuborðið góða, Guðrún er að læra og ég að smíða skýrslu fyrir verkefnið mitt.
Skrifad 10/17/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Superman dáinn
Áður fyrr heyrði ég stundum "eldra" fólk tala um hvað það saknaði gömlu leikaranna og hvað það væri sérstaklega sorglegt að horfa á eftir þeim fara. Í gær dó æskuhetjan mín! Christopher Reeve sem lék Superman lést í gær! Á leiðinni er ný mynd um Superman, án vafa með ágætis leikara. Ég get þó ekki gert annað en tekið undir nostalgíuna og sagt: "Það var bara einn súperman, ég sakna hans!"

Skrifad 10/11/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Golf og Kínamatur
Í gær ákvað ég að hætta á hádegi og sækja strákana til að fara í golf. Það er spáð leiðindarveðri um helgina og þess vegna ákváðum við að drífa okkur. Veðrið í gær var hins vegar svo gott (20 stiga hiti og sól) að við ákváðum að fara tvo hringi á litla 9 holu vellinum, myndir koma um helgina. Eftir golfið skelltum við okkur á kínakvöld í HEC þar sem boðið var upp á kínamat og kínverskan gjörning.

Linkur daxins: Che Guevara
Skrifad 10/8/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Heimsókn
Októberfest var frábær. Við keyrðum heim á sunnudaginn og ferðin tók 10 tíma. Þetta var því ansi mikill akstur fyrir svona stuttan tíma. Brynjar og Gunni koma í heimsókn í fyrramálið og þá er ýmislegt á dagskrá s.s. Kínverkst matarpartý í HEC, bílasýning og golf ásamt dæmigerðum Eiffel, Notre dame, Louvre, Versailles túristapakka. Þeir leggja svo í hann heim á mánudaginn.
Skrifad 10/6/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Októberfest
Jæja þá leggjum við bráðum í hann á Októberfest hjá Fúþa og Eddu Björk. Brynjar og Gunni eru þessa stundina að leggja í hann til okkar og lenda hér upp úr hádegi. Við sækjum þá á flugvöllinn og keyrum þaðan beint til Þýskalands. Stoppið verður reyndar stutt hjá okkur Guðrúnu því við komum aftur heim á sunnudaginn. Strákarnir verða hjá Fúsa þangað til á miðvikudaginn en þá koma þeir til okkar og verða fram yfir helgi.
Skrifad 10/1/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |