Frönskukennsla og fleira
Skólinn hennar Guðrúnar er ótrúlegur. Fyrir utan góða kennslu, aðstöðu og orðspor þá gera þeir rosalega mikið fyrir maka. Margir í náminu eru með fjölskylduna sína með, þá oftast menn með konuna sína og börnin. Mér var einmitt boðið að mæta í saumaklúbb um daginn.

Allavega. Makar hafa rétt á sama aðgangi að allri félagsaðstöðu og nemandinn. Ég er því skráður í sundlið MBA hlutans sem æfir 2x viku, við Guðrún erum bæði skráð í golfkennslu 1x í viku og erum bæði skráð í frönskukennslu 2x í viku. Þetta er alveg frábært. Það má auðvitað segja að þar sem námið er ekki beint ókeypis sé þetta alveg eðlilegt. Ég átti þó ekki von á svona miklum fríðindum fyrir maka. Bonne nouvelle!
Skrifad 9/30/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Mikið að gera
Það er búið að vera frekar mikið að gera hjá okkur síðustu vikur. Jón er að fara að skila verkefni í lok þessarar viku og ég er búin að vera á kafi í skólanum. Í dag var fyrsti venjulegi skóladagurinn. Síðasta vika fór öll í að reka sýndar-fyrirtæki í tölvu. Við vorum fjögur í hóp og fengum tæknifyrirtæki sem var staðsett í Malasíu. Á hverjum degi þurftum við að taka ákvarðanir fyrir tvo ársfjórðunga. Við fengum tvo klukkutíma til að taka ákvarðanir fyrir hvern ársfjórðung og þess á milli var kennsla. Ákvarðanirnar sem við tókum höfðu síðan áhrif á hvernig fyrirtækinu gekk á milli fjórðunga eins og gefur að skilja. Meðal þeirra ákvarðana sem við þurftum að taka út frá ársfjórðungsskýrslu fyrirtækisins var meðal annars hvort við ættum að byggja verksmiðjur og hvernig verksmiðjur, hvort við ættum að kaupa hlutabréf í öðrum fyrirtækjum í leiknum, hversu mikið við eigum að eyða í markaðssetningu vörunnar, á hvaða markaði við ætlum að reyna að selja o.s.frv. Það sem var líka mjög skemmtilegt við þetta var að við gátum samið við önnur fyrirtæki þ.e. hópa sem voru að reka fyrirtæki um að framleiða vöru fyrir þá eða selja þeim hráefni o.s.frv. Þessar samningaviðræður þurftu að fara fram á þessum stutta tíma sem við höfðum þannig að þær urðu oft mjög skrautlegar sérstaklega þegar tvö fyrirtæki voru að keppast um sömu hlutina. Fyrirtækið sem minn hópur sá um að reka í tvö ár á einni viku kom bara mjög vel út úr þessu. Við fjórfölduðum hlutafjárverðið og tvöfölduðum gróða fyrirtækisins. Eitt fyrirtæki í leiknum fór á hausinn á öðrum ársfjórðungi þannig að við erum bara mjög ánægð með árangurinn. Þetta var alveg frábær vika en mjög erfið því að skólinn var frá átta á morgnanna til sjö á kvöldin. Annars er farið að kólna hérna úti og við þurftum að kveikja á ofni í fyrsta sinn í fjóra mánuði í gær.
Skrifad 9/27/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Canon myndavél
Canon kynnti í dag myndavél sem tekur sony vélinni fram sem ég talaði um áður. Hún hefur alla sömu fídusa og sony vélin nema er minni, léttari og notar ódýrari tegund af flash minni. Svo er meira að segja til 3,2 megapixla útgáfa af henni sem er enn ódýrari. Hér er snilldin.
Skrifad 9/22/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Vistin í Útlandinu
Ég hef komist að því að stundum er ekki auðvelt að búa í Útlandinu. Það getur tekið á taugarnar og oft þarf að leggja mikið á sig til að gera einföldustu hluti. Þetta kemur ekki alltaf fram á heimsíðum útlandabúanna. Einstaka sinnum þarf þó ekki að grafa djúpt til að sjá áhrifin á fólkið sjálft.

Sjáiði t.d. hvernig prófin fóru með Möggu í MIT:


Hvernig Íslandssöknuðurinn fer með Munda og Svanhildi:


Hvernig Geir er bumbulaus og hættur að blogga um pólitík!


Já þetta getur verið erfitt!
Skrifad 9/17/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Skólinn byrjaður
Ég byrjaði í skólanum á mánudaginn. Það er búið að vera svolítið mikið að gera því að það er yfirleitt kennt frá átta á morgnana til hálf sjö á kvöldin. Fyrirlestrarnir eru svolítið ólíkir því sem maður þekkir frá Íslandi því að hérna eru tímarnir tvær og hálf klukkustund án hlés. Þetta er búið að vera mjög skemmtileg vika því að ég er búin að kynnast fullt af fólki frá öllum mögulegum löndum. Mér líst ótrúlega vel á þetta og er mjög ánægð með að vera aftur byrjuð í skóla.

Ég er í sex kúrsum fyrir jól og inn á milli er líka fullt af ráðstefnum. Það er rosalega mikið félagslíf í skólanum fullt af teitum, íþróttamótum og klúbbum. Ég er ennþá að vinna í því að klára pappírsvinnuna þetta er nú einu sinni Frakkland. Hérna þarf að koma með ljósrit af pappírum og skrifa undir fullt af pappírum til að fá t.d. mötuneytiskort. En þetta er allt að verða komið hjá mér og ég er mjög ánægð með mötuneytiskortið mitt því að maturinn er rosalega góður og kostar ekki nema 290 krónur máltíðin. Það er alltaf mikið úrval og ég get valið um þrjár mismunandi tegundir af heitum mat.

Í árganginum mínum eru 109 nemendur frá 36 löndum. Ég er búin að kynnast um það bil helmingnum en man samt ekki öll nöfnin. Ég er ennþá að vinna í því að kynnast restinni.
Skrifad 9/16/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Agavandamál?
Niðurstöðurnar eru ótvíræðar: PROVEN RESULTS- Jo-Thor's Obedience Academy has graduated over 10,000...
Skrifad 9/15/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Bara teip'etta
Duct Tape er til alls nýtilegt, eins og hefur komið fram áður. Benji var hins vegar að senda mér þvílíka snilldar síðu sem hefur enn útvíkkað hugmyndir mínar um nýtingu á teipinu! Allt er hægt, hér er snilldin!
Skrifad 9/13/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Sissa í heimsókn
Sissa kom í heimsókn á miðvikudaginn og verður fram á sunnudag. Hún og Guðrún fóru niður að Eiffel turni í gær og í H&M í gærkvöldi. Á mánudaginn byrjar svo skólinn hjá Guðrúnu, magnað hvað tíminn líður hratt. Hún var einmitt niðri í HEC í hádeginu að græja formsatriði eins og bankareikning, tryggingar, glósur, bækur ofl.
Skrifad 9/10/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Myndir
Í gær settum við inn fullt af myndum frá heimsóknunum síðustu daga.
Skrifad 9/8/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Golf... eða hvað!
Þegar allir geztirnir voru farnir á sunnudaginn ákváðum við Guðrún að skella okkur í golf, enda 35 stiga hiti og sól. Það er mikið að gera á golfvellinum um helgar og sérstaklega núna því veðrið er búið að vera gott. Við gerðum auðvitað ráð fyrir því að vera í sérflokki léleg því þetta er mjög flottur og professional golfvöllur. Okkur til mikillar ánægju kom annað í ljós.

Við byrjuðum á æfingarsvæði þar sem fólk skýtur nokkrum kúlum til að æfa sig áður en það spilar hring. Á æfingarsvæðinu sáum við ýmislegt nýtt! Þarna voru ótrúlegustu stílar sem ég hef á ævinni séð. Við sáum t.d. franzka útgáfu af Happy Gilmore sem skaut aftur og aftur af ótrúlegu afli en hitti aldrei boltann! Við löbbuðum um til að leita að stað til að æfa okkur. Á leiðinni sáum við einn kylfing slá af svo miklum krafti og svo skakkt að hann missti ekki bara af kúlunni heldur nelgdi í golfpokann sinn! Kylfur út um allt!

Á endanum fundum við stað og byrjuðum að skjóta. Maðurinn við hliðina á mér tók þá fljótlega upp á því að prófa að skjóta ekki endilega kúlunni sem slíkri, heldur kúlukörfunni, með tilheyrandi normaldreyfingu á kúlum um allt æfingarsvæðið. Þetta gerði hann ekki einu sinni, heldur tvisvar sinnum á 15 mínútum.

Nú er ég ekki að þykjast vera góður í golfi, en tjah, ég held að við Guðrún getum með góðri samvizku sagt að við vorum a.m.k. ekki þau allra lélegustu á svæðinu þennan ágæta sunnudag.
Skrifad 9/7/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Madonnu tónleikar
Á laugardaginn fórum við á Madonnu tónleika. Við ákváðum að mæta snemma til þess að geta verið framarlega á tónleikunum. Við vorum mætt um eitt leitið á tónleika sem áttu að byrja klukkan átta um kvöldið. Við vorum að sjálfsögðu ekki ein um það að mæta snemma enda komin smá röð þegar við mættum á svæðið. Sumir höfðu meira að segja mætt kvöldið áður og sofið í röðinni um nóttina. Hjá okkur tók síðan við 6 tíma bið í 33 stiga hita og sól í biðröð. Við vorum öll orðin frekar þreytt og sveitt þegar byrjað var að hleypa inn í tónleikahöllina en það breyttist fljótt í mikla spennu og eftirvæntingu sérstaklega þegar við áttuðum okkur á því að við vorum aðeins örfáum metrum frá sviðinu. Það hafði aldeilis borgað sig að mæta svona snemma. Tónleikahöllin tekur 25 þúsund manns þannig að það tók næstum því tvo tíma að hleypa fólkinu inn. Á slaginu níu hófust síðan tónleikarnir. Það varð allt vitlaust þegar Madonna mætti á sviðið ásamt fríðu föruneyti og byrjaði að syngja Vogue. Ég hefði aldrei trúað því hvað það er gaman að fara á svona tónleika. Búningarnir og sviðsmyndirnar og dansararnir o.s.frv. voru rosalegir. Þetta var þvílík upplifun. Það var líka ekkert smá gaman að vera svona nálægt sviðinu og með fullkomið útsýni. Það kom mér líka mikið á óvart að það var ekki neinn troðningur. Við gátum staðið í rólegheitum á sama stað og við vorum á þegar við komum fyrst inn án þess að hafa neitt fyrir því þar sem að nánast enginn var að troðast. Þetta var þvílíkt frábrugðið tónleikum heima á Íslandi þar sem allir keppast við að ýta hvorum öðrum og troðast þar til það byrjar að líða yfir fólk fremst í salnum.

Madonna kann aldeilis að skemmta áhorfendunum. Hún skipti um búning fimm eða sex sinnum og það var ekki ein einasta sekúnda sem það var ekki eitthvað magnað að gerast á sviðinu. Á einum tímapunkti í sýningunni birtust þjóðfánar hinna ýmsu landa á risaskjá fyrir aftan hana og þar mátti sjá íslenska fánann okkur til ómældrar ánægju. Þessir tónleikar voru í einu orði sagt FRÁBÆRIR! Enda vorum við öll í sæluvímu þegar við komum þreytt heim eftir daginn.
Skrifad 9/6/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Afmæli
Jón Þór átti afmæli núna á þriðjudaginn og í tilefni af því var farið á Buffalo Grill sem er mjög góður veitingastaður rétt hjá okkur. Þar er hægt að fá nautasteikur og BBQ rif og fleira gotterí. Maturinn var mjög góður eins og alltaf og eftirréttirnir ekki síðri. Það er svolítið mikið um afmæli hjá okkur núna því að við vorum að átta okkur á því að á mánudaginn áttum við eins árs Frakklands afmæli þ.e. það er komið heilt ár síðan við komum hingað út. Síðan á ég 25 ára afmæli í næstu viku orðin eldgömul ;o)

Dagurinn í dag var alveg frábær 26 stiga hiti og sól. Ég, Mundi og Svanhildur vorum í túristapakkanum og rólegheitum í miðbæ Parísar að njóta veðurblíðunnar og Berglind og Katrín skruppu í Disney-land í dag.
Skrifad 9/2/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Mundi & Svanhildur
Í dag koma Mundi og Svanhildur til okkar. Þau fara ásamt okkur, Berglindi og Kartínu á Madonnu tónleikana hér í París þann 4. sept. Annars var í gær tekin ákvörðun um að uppfæra 5 ára gömlu stafrænu myndavélina okkar um jólin og kaupa þessa ódýru en samt litlu sony vél.
Skrifad 9/1/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |