Berglind komin, Kristján fer í dag
Það hefur verið mjög gaman að hitta kristján og kynnast Suzanne. Á föstudaginn elduðum við Fajitas og spjölluðum fram eftir kvöldi. Á laugardaginn komu svo Berglind og Katrín, þá var Racletta græjan okkar notuð og raclette eldað við mikinn fögnuð. Um helgina var líka tekinn smá túristapakki kíkt á Eiffel turninn og Sacre Cæur. Við tókum fullt af myndum og hendum örugglega inn fullt af myndum eftir 5. sept þegar tónleikarnir eru búnir!
Skrifad 8/30/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Golf?
Golfvöllurinn í gær var sá flottasti sem ég hef séð en jafnframt sá langerfiðasti. Ef þér tókst ekki að hitta í rétta átt þá var nokkuð víst að kúlan var týnd. Ofan á erfiðleikastigið má síðan bæta rigningunni í gær, það ringdi mjög mikið mestallan tímann. Ég stóð því þarna í grenjandi rigningu, á erfiðasta velli sem ég hef spilað og spilaði svona líka stórkostlega illa. Að meðtöldum refsistigum fyrir að týna 2 kúlum og fara nokkru sinnum út af braut tókst mér að ná góðum 17 höggum á einni holunni! Það verður að teljast nokkuð gott! Að öðru leyti þá skemmti ég mér konunglega, við prófessorinn hlóum bara að þessu og stefnum á golf aftur fljótlega.
Skrifad 8/26/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Golf & Göthe
Í dag eftir vinnu er ég að fara 18 holur með prófessorinum mínum. Við erum að fara á völl sem er við hliðina á HEC, skólanum sem Guðrún er að fara í. Þetta er víst erfiður völlur svo það verður spennandi að prófa hann. Annars fóru Ásbjörg og Mangi heim í gær og á morgun eigum við von á næstu heimsókn. Þá eru Kristján og Suzanne að koma til okkar frá Þýzkalandi. Kristján er búinn að vera í GuntherMottuLandinu í 2 mánuði á styrk á Göthe sjálfum til að læra þýzku.
Skrifad 8/25/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Ásbjörg og Mangi í heimsókn
Ásbjörg og Mangi komu á föstudaginn í heimsókn til okkar og verða fram á þriðjudag. Á föstudaginn var spilað og spjallað fram eftir. Í dag vöknuðu svo stelpurnar snemma og fóru að versla. Ég og Mangi tókum því bara rólega, skelltum okkur upp úr hádegi á KFC og fórum síðan 2x9 holur á golfvellinum hjá vinnunni. Núna eru stelpurnar að taka sig til og við erum að fara út. Stefnan er sett á Grænu Sósuna og síðan á Champs Elysée á skemmtistaði!
Skrifad 8/21/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Golf
Í gær fórum við Guðrún á driving range rétt hjá vinnunni minni. Það eru 2 eðal golfvellir við hliðina á CEA. Það er alls ekki dýrt að fara á þessa golfvelli og sér í lagi ódýrt á virkum dögum. Hér eru nokkur verð frá öðrum vellinum:

Verð 9 holur:
Virkur dagur 23€ - helgi 30€ (yngri en 26 ára fá 25% afslátt af þessu)

Verð 18 holur:
Virkur dagur 32€ - helgi 52€ (yngri en 26 ára fá 25% afslátt af þessu)

Svo er hægt að fá lánað 1/2 golfsett fyrir 7€ og leigja bíl á 15€ (9) - 25€ (18). Þetta eru verð fyrir almenning en við Guðrún erum í golfklúbb CEA sem þýðir að við borgum t.d. ekki nema 12€ fyrir 18 holur á virkum dögum! Það er nokkuð ljóst að þetta verður vel nýtt á meðan veður leyfir!
Skrifad 8/20/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Útlandarigning
Ég skrapp aðeins út í búð í blíðskaparveðri svona sól og 25 stiga hiti og ég á sandölum. Ég versla í rólegheitum í matinn ætli það hafi ekki tekið svona um það bil 14 mínútur. Þegar ég kem út úr búðinni þá er hellidemba og þá er ég að tala um svona sturtukraft af rigningu og 5 cm vatnselgur á götunum. Búðin er í 300 m fjarlægð frá íbúðinni okkar þannig að ég ákvað að taka bara sprettinn heim. Sem var góð ákvörðun því að rigningin entist í góðan hálftíma. Þegar ég kom heim þurfti ég að klæða mig úr öllu því að ég var gegnblaut enda ekki við öðru að búast eftir 300 metra sprett í sturtu. Þessari rigningu fylgdu líka þvílíkar þrumur og eldingar. Annars er ekkert að frétta nema það að nú fer heimsóknartímabilið að ganga í garð. Við eigum von á gestum á föstudaginn og eftir það er ekki laust hjá okkur fyrr en þrettánda september.
Skrifad 8/18/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Frábært sumarfrí á Íslandi
Við erum komin heim eftir mjög vel heppnaða ferð til Íslands. Hver einasti dagur var vel nýttur til að hitta vini og borða góðan íslenskan mat. Við vorum mjög heppin með veður enda hitabylgja á Íslandi. Það var því ekki mikil breyting að koma hingað út í 25 stiga hitann hér í París.

Það er alveg ótrúlegt hvað skordýr á Íslandi eru að hafa það gott a.m.k. virðast vera svona tíu sinnum fleiri flugur þar heldur en hérna úti. Ég hef t.d. ekki séð geitung síðan við fluttum til Parísar en á Íslandi virðist ekki vera hægt að borða mat utandyra án þess að fá heimsókn frá a.m.k. einum slíkum og hvað er málið með allar þessar hrossaflugur?
Skrifad 8/17/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Á leiðinni heim aftur
Eftir frábæra viku á Íslandi erum við á leiðinni til Parísar í fyrramálið. Okkur tókst að hitta mjög marga og skilum kveðju til allra hinna. Ágústmánuður verður heimsóknamánuður hjá okkur því við eigum von á mjög mörgum í heimsókn, meira um það síðar.
Skrifad 8/14/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Heimsókn og heimför
Um helgina fékk ég frændfólk í heimsókn. Eyþór frændi og fjöslkylda ásamt Elsu frænku komu í heimsókn. Við kíktum á Catacomburnar og fengum okkur þessa líka eðalsteik í kvöldmatinn. Takk fyrir mig. Í fyrramálið er ég svo á leiðinni til Íslands í eina viku! Ég vona að ég nái að hitta sem allra flesta!
Skrifad 8/5/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |