Foreldrar Guðrúnar og Cannes
Á þriðjudaginn komu foreldrar Guðrúnar í heimsókn til okkar. Þau eru búin að fara að skoða skólann hennar Guðrúnar og minn, kíkja í Eiffel turninn, Champs Elyssées og borðað á Grænu sósunni frægu. Á morgun verður svo lagt í hann til Cannes. Við ætlum að keyra 900km til Cannes og vera þar í eina viku. Tíminn verður nýttur vel í... Nákvæmlega ekki neitt, stefnt er að því að skoða sundlaugarbakkann, ströndina og jafvel nokkra veitingastaði!
Skrifad 6/25/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Fête de la musique
Í gær var svokölluð "fête de la musique" í Frakklandi. Þetta er eins kona Menningarnótt Frakka, nema snýst bara um tónlist. Á þessum degi á hverju ári eru hljómsvetir að spila á hverju götuhorni í Frakklandi. Við rúntuðum niður í bæ þar sem allt var troðfullt af fólki og mikið um að vera, alls staðar tónlist og fólk að dansa. Við vorum raunverulega ekki búin að átta okkur á því hversu stór hátíð þetta er. Festivalinu lauk á miðnætti og þá vorum við mjög sátt við að vera á bíl. Við Eiffel turninn var u.þ.b. 500m löng biðröð. Við erum byrjuð að skipuleggja tónlistarhátíð næsta árs, þá verður farið snemma niður í bæ og dagurinn nýttur vel. Hverjir ætla með?
Skrifad 6/22/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Magnað
Þegar ég mætti í vinnuna í morgun blasti við mjög undarleg sjón. Pappírar, nokkrar ínartaðar kexkökur og undarlegar hvítar/brúnar klessur dreyfðar um alla skrifstofuna. Við nánari athugun kom í ljós að einhver hafði ekki lokað glugganum á skrifstofunni sinni fyrir helgina. Óprúttin fiðurhænsn hafa því ákveðið að fara inn um gluggann, borða prince kexið mitt, sparka blöðum til og frá og gera þarfir sýnar á tölvuskjáinn, lyklaborðið, skrifborðið og símann minn! Takk fyrir, Ágætt!
Skrifad 6/21/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Kominn aftur
Þá er ég kominn aftur til Parísar eftir vel heppnaða heimsókn til Íslands. Frakkarnir voru mjög hrifnir af Íslandi. Við heimsóttum Nesjavelli, fórum í Perluna, Bláa lónið ofl. ofl. Ég tók auðvitað nokkrar myndir en myndaforritið hefur eitthvað verið að stríða okkur. Ég vona að ég geti lagað það um helgina.
Skrifad 6/18/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Skreppur til Íslands
Á morgun fer ég í þriggja daga heimsókn til Íslands með prófessornum mínum og tveimur öðrum Frökkum. Á móti okkur taka fulltrúar Háskóla Íslands. Þá verður vetnis-samstarfið á milli Íslands og Frakklands rætt og fyrirhugaðar framkvæmdir eftir verkefnið mitt ræddar. Einnig verður farið að skoða vetnis áfyllingarstöðina, strætóana og fleira.
Skrifad 6/11/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Hiti
Það er búið að vera rosalega heitt hjá okkur síðustu daga. Hitinn er um 32-33 gráður sem er víst mjög óvenjulegt fyrir þennan tíma. Eftir vinnu í gær var virkilega erfitt að setjast inn í Svarta BMW-inn okkar með svörtu innréttingunni sem hafði staðið í sólinni allan daginn. Ég keyrði heim með alla glugga og sóllúguna opna en þetta var samt ansi heitt & sveitt. Þegar ég kom svo heim, skellti ég mér í sturtu og tók þá eftir undarlegu rauðu fari beint á ská yfir alla bringuna. Eftir nokkra sek. umhugsun áttaði ég mig á því að farið var eftir bílbeltið! Magnað?
Skrifad 6/9/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Metro
Fyrir nokkrum dögum mætti lið af einkennisklæddum iðnaðarmönnum sem byrjuðu að bora í götuna fyrir utan gluggann okkar. Málið var kannað og það kom í ljós að þarna var verið að smíða nýja Metro stöð. Þegar við fluttum var okkur sagt að það myndi opna stöð nálægt okkur en þetta er magnað! Við höfum hingað til þurft að spássera tæpan kílómetra til að komast í Metro-ið. Stöðin á að opna um miðjan mánuðinn.
Skrifad 6/8/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Farin heim
Nú eru foreldrar mínir og systur að leggja í hann til Íslands. Þau eru búin að vera í heimsókn hjá okkur í eina viku og sú vika var nýtt vel. Guðrún er orðin sérfræðingur í fararstjórn um París og farin að þekkja vel sniðuga hluti til að sjá (enda nóg af þeim). Við tókum fullt af myndum sem við setjum inn í vikunni.
Skrifad 6/7/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Verslun og Viðgerðir
Eftir vinnu í gær fór ég og hitti alla í Gallery Lafayette þar sem var verslað til að verða 9. Það er nefninlega alltaf opið lengur á fimmtudögum í flestum verslunarmiðstöðum í París. Eftir yfirgripsmikla úttekt í H&M og gæðapróf á McDónalds fórum við heim. Við Pabbi tókum okkur þá til og skiptum um legur öðru megin í bílnum. Við erum að verða svona líka professional í þessu.
Skrifad 6/4/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Foreldrarnir í heimsókn
Í þessum töluðu orðum er öll fjölskyldan í Louvre safninu að skoða Mónu og Afródítu. Það er nú lítið gaman að vera hér í CEA á daginn á meðan fjölskyldan er í heimsókn. Það gerist ekki á hverjum degi. Stefnt er að því að nýta helgina vel.
Skrifad 6/2/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

HEC og heimsókn
Jibbý! Ég komst inn í HEC. Þannig að ég er á leiðinni í skóla núna í september. Námið eru 16 mánuðir þannig að ég útskrifast í janúar 2006. Við vorum að koma heim til Parísar og með í för var fjölskyldan hans Jóns Þórs. Þau verða hjá okkur í viku og stefnt er að því að nýta tíman vel.
Skrifad 6/1/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |