Gömul
Tónleikarnir voru frábærir, Metallica alveg brill. Hins vegar virðumst við vera orðin eldri en við héldum. Þegar við komum inn þá var hávaðinn svo mikill að við urðum að kaupa okkur eyrnatappa. Eftir að hafa hoppað við tónlistina í nokkur lög vorum við orðin svo þreytt í löppunum og bakinu að meiri hreyfing kom ekki til greina. Eftir tónleikana var síðan með öllu ómögulegt að fá leigubíl svo það tók okkur næstum 3 tíma að komast heim. Það virðist því ljóst að fyrir næstu tónleika þarf að kaupa eyrnatappa, vera búinn að panta leigubíl og koma með göngugrind!
Metallica
Við erum búin að hafa það rosalega gott hér í Kaupmannahöfn. Við leggjum í hann heim til Íslands á morgun en í kvöld verður farið á Metallica. Í morgun heyrðum við í útvarpinu að fólk búið að bíða fyrir utan Parken tónleikahöllina síðan í gær!
Þá leggjum við í hann
Guðrún var að klára seinni viðtalið rétt í þessu og það gekk virkilega vel, fyrra vitalið gekk líka mjög vel. Þá er bara að vona það besta. Núna erum við hins vegar að leggja í hann til Kaupmannahafnar þar sem verður farið á Metallica tónleika með Sunddeildarkrökkunum. Við verðum þar í nokkra daga og förum svo til Íslands í nokkra daga í viðbót þar sem að Berglind er að útskrifast úr MR. Kaupmannahöfn here we come!
Síðasta færsla horfin
Eitthvað undarlegt í gangi. Síðasta færsla hvarf bara og gerði það einmitt líka hjá Sigfúsi. Heimasíður okkar eru vistaðar á sama vefþjóni. Að sama skapi virkar nýja myndasíðan ekki en þetta lagast allt fljótlega. Annars er það í fréttum að Guðrún komst í gegnum fyrri síuna í HEC. Næst á dagskrá eru því 2 viðtöl og svo fær hún svar 28. maí um hvort hún kemst inn eða ekki. Hún var einmitt rétt í þessu að lenda í París og er á leiðinn heim á Frelsisstræti 1.
Frábær helgi
Í þessum skrifuðu orðum er Pabbi að legga í hann frá íbúðinni okkar Guðrúnar út á flugvöll. Helgin er búin að vera frábær. Við gerðum við bílinn og nutum lífsins í París enda vorum við mjög heppnir með veður. Það er að hitna hratt þessa dagana. Um helgina var í kring um 25 stiga hiti. Ég skellti inn myndum helgarinnar á myndasíðuna.
Golf
Í gær skráði ég okkur Guðrúnu í Golfklúbb CEA. Þetta þýðir að við getum farið á 2 mjög góða velli á virkum dögum eftir vinnu fyrir 12€. Við fáum líka afslátt um helgar en það er talsvert dýrara. Þessir golfvellir eru staðsettir rétt hjá CEA og því að sama skapi rétt hjá skólanum sem Guðrún er að sækja um. Nú er bara að sækja settið fyrir sumarið!
Skrepp
Nú stefnir allt í það að Pabbi ætli að kíkja í heimsókn um helgina. Hann kemur líklegast vopnaður hálfum bílskúr af verkfærum því hugmyndin er sð gera við BMW-inn saman um helgina. Fyrir áhugasama þá ætlum við að skipta um viftukúplingu, bremsudisk og gera við "leggja-sætið-fram" virknina í farþegasætinu.
Helgin
Ég vaknaði laugardagsmorguninn við lúðrasveit fyrir utan gluggan minn. Það var nefninlega 8. maí á laugardaginn, en þá er haldið upp á endalok seinni heimstyrjaldarinnar. Eftir vakninguna var farið í sturtu og þaðan í hádegismat með prófessornum mínum, konunni hans og einum öðrum nemanda. Ég hlakkaði til því frönsk matargerð er frábær og maturinn heimatilbúinn. Því miður var þetta ekki eins og væntingar stóðu til. Prófessorinn minn á son sem er nýgiftur afrískri konu og þau hjónin virðast hafa ákveðið að prófa afríska matargerð á mér. (Ekki það að ég hafi hugmynd um hvað afrísk matargerð er!)
Í forrétt var einhverskonar "kalt súrávaxta-sjávarrétta combo" sem var svo hræðilega vont að þegar allir voru búnir þá var ég rétt hálfnaður og þurfti því að spæna í mig til að vera ekki dónalegur. Í aðalrétt var "fisk-surprise með afrískum risakarftöflum". Það er nú oft þannig hér í Frakklandinu að fiskurinn er ekki úrbeinaður, svo ég var tilbúinn. Ég réðst á diskinn minn með hnífnum og bókstaflega bjó til fiskstöppu í þeim tilgangi að ná beinunum út. Svo byrjaði ég að borða, þvílíkt magn af beinum. Þegar ég var hálfnaður tek ég eftir því að allir aðrir voru búnir. Ég hóf því aftur að spæna í mig. Nú hafa glöggir væntanlega gert sér grein fyrir því að það er hlutfallslega auðveldara að spæna í sig "exotic" ávexti með rækjum en beinóttan fisk. Mér varð nú allt í einu svo flökurt að ég átti erfitt með að fela það. Á meðan á öllu þessu stóð var húsfrúin að tala við mig og spyrja um Ísland. Í miðju samtali um veðrið á Íslandi tók Jón sig til og kúgaðist hressilega, tók út úr sér beinóttan fiskbita, setti aftur á diskinn sinn og hélt samtalinu við gestgjafan áfram. Ég skammaðist mín að sjálfsögðu gríðarlega og kláraði af disknum mínum. Eftirrétturinn var hins vegar góður og eftir hann var drukkið kaffi. Ég fór heim með "multiple-fishbone-cuts" í hálsinum og get með sanni sagt að þessi matur var ekki upp á marga fiska....
Guðrún farin til Íslands
Ég var að koma aftur í vinnuna eftir að hafa skutlað Guðrúnu á flugvöllinn. Þá taka við 2 vikur hjá mér hér í París áður en ég fer til Kaupmannahafnar þann 21. maí. Þar verður farið á Metallica tónleika. Eftir það verður kíkt til Íslands í 4 daga því Berglind er að útskrifast. Það verður skrítið að vera hér einn. Guðrún smellti myndunum af heimsókninni hennar Marenar inn í gær. Smelltu hér til að skoða þær. Ég laga svo myndalinkinn þegar ég kem heim í dag.
Annars er nóg að gera hjá mér í vinnunni. Ég er að gera útdrátt úr doktorsverkefni um "High Temperature Solid Oxide Fuel Cells". Merkilegt nokk þá á að senda þetta síðan til Karlsruhe í Þýzkalandi þar sem menn eru að vinna svipuð verkefni og skiptast þannig á módelum. Ef eitthvað gáfulegt kemur út úr því þá kem ég til með að nota það í ritgerðinni minni.
Bæjarferð
Við Maren kíktum í bæinn í gær og kíktum á verzlunarmiðstöð sem heitir Gallery Lafayette. Þar er eitt stykki Louis Vuitton búð. Við nenntum samt ekki að standa í biðröð til þess að komast inn í þá búð en það er víst alltaf biðröð af asíubúum fyrir utan. Þeim er hleypt inn í hollum og settur er kvóti á hversu margar töskur þeir mega kaupa en taskan er einmitt að kosta svona að meðaltali 300.000 krónur.
Í dag ætlum við að skoða Notre Dame kirkjuna og hverfið þar í kring. En á morgun þá skiljum við Jón Þór einan eftir í París. Maren fer aftur til Hollands og ég flýg til Íslands.
Draugalegur dagur
Ég og Maren fórum í gær í kirkjugarðinn þar sem Jim Morrisson og fleiri frægir eru grafnir. Það er alveg magnað að koma inn í kirkjugarða hérna því að þeir líta út eins og litlar borgir með götum og götuheitum. Ofan á flestum gröfunum er nefninlega svona eins konar bænahús sem að fjölskyldumeðlimir hinna látnu geta notað til að biðja fyrir ástvinum sínum. Húsin eru mjög mishugguleg og við sáum nokkur með mjög undarlegum skreytingum. Einum fannst við hæfi að hafa leðurblöku styttur á sínu húsi og öðrum fljúgandi hauskúpur sem er svona frekar óhugnalegt.
Þegar við vorum búnar að labba þarna um í dágóða stund og skoða það allra merkilegasta og skrýtnasta þá ákváðum við að fara og skoða "Des Catacombes". Skoðunarferðin byrjar á því að maður labbar niður hringstiga þar til maður er kominn 25 metra undir yfirborð jarðar þar taka við göng sem eru á köflum ekki nógu há til að maður geti labbað uppréttur. Það er mikill raki inni í göngunum og á sumum stöðum detta dropar úr loftinu. Göngin sem eru afmörkuð fyrir ferðamenn eru 2,7 km löng en talið er að heildarlengd á þessu völundarhúsi af göngum sé 300 km. Þegar við erum búin að ganga um það bil 1 km í göngunum kemur skilti sem á stendur að hér eftir sé "ríki hinna látnu". Við göngum þar inn og þá tekur við 1 km af göngum þar sem búið er að raða beinum og hauskúpum meðfram öllum veggjum. Beinaveggirnir eru 2-3 metra djúpir. Beinunum var komið fyrir í þessum göngum í kring um 1800 þegar kirkjugarðarnir í París voru orðnir yfirfullir. Búið er að raða beinum 7 milljóna manna þarna meðfram veggjunum. Þetta er það óhugnalegasta sem ég hef á ævinni séð og manni finnst hálf einkennilegt að það sé búið að gera þetta að ferðamannastað. Ég set kannski inn myndir af þessu í kvöld.
Annars er búið að vera rosalega gaman hjá okkur. Við fórum í 24 stiga hita og sól og kíktum á Eiffel turninn á laugardaginn svo kíktum við í Louvre safnið á sunnudaginn síðasta. Svo erum við Maren búnar að mæla göturnar í París og sjá það allra helsta núna í vikunni.