Spjall
Í gær var spjallað frameftir og borðað að frönskum hætti. Hér eru 2 myndir frá því í gær, á seinni myndinni er virkni svefnsófans útskýrð:
--> Mynd 1 <--
--> Mynd 2 <--
Skrifad 4/30/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Maren að koma í heimsókn
Hún kemur kl 14:05 í dag og þær Guðrún ætla að Kaffihúsast eitthvað þangað til að ég kem heim. Hún verður í heimsókn hjá okkur í viku og stefnan er að taka góðan túristapakka á meðan hún er hér. Ég hef jú aldrei skoðað ferðamannastaðina hér áður. Við Guðrún skelltum okkur í IKEA í gær og keyptum sófaborð og standlampa í Stofuna. Það var nefninlega nákvæmlega ekki neitt nema svefnsófinn í stofunni fyrir. Þetta kemur allt smátt og smátt. Í kvöld verður boðið upp á Taco að hætti hússins.
Skrifad 4/29/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Á leiðinni í vinnuna
Ég var á leiðinni í vinnuna í gær og fannst umferðin óvenju þung miðað við þennan tíma. Fljótlega kom í ljós hvað var að. Smelltu á mig til að sjá það. Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig bílstjóranum hefur tekist, á miðri hraðbraut, að snúa bílnum í rúman hálfhring og slöngva afturenda bílsins upp um hálfan meter á blásaklausan kantstein? Hugmyndir? Það er ekki alveg hlaupið að þessu, ekki einu sinni með dyggri aðstoð annarra franskra ökumanna.
Skrifad 4/28/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Ég er orðin frænka
Ég eignaðist lítinn frænda í gær. Hann vegur 16,5 merkur, er með 10 fingur og 10 tær og er rosalega myndarlegur. Ég hlakka þvílíkt mikið til að hitta litla snillinginn. Ég þarf að láta mér nægja að sjá hann á myndum þar til 7. maí en þá á ég pantað flug heim til Íslands. Til hamingju með soninn Lýður og Ragnheiður.
Skrifad 4/27/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Umsókn
Ég var að enda við að klára að senda inn umsóknina mína um skólavist í HEC MBA business program sem er meistaragráða í viðskiptum og stjórnun. Ég fór í heimsókn í skólann í morgun til að skila inn þeim gögnum sem voru ekki á rafrænu formi. Mér líst alveg rosalega vel á skólann og nú vona ég bara að ég komist inn.
Skrifad 4/26/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Magnað
Nú vantar mig myndavélina! Skrifstofan mín er á 4. hæð og allt í einu upp úr þurru heyri ég í vélsög fyrir utan gluggan minn! Ég kíki út! Þá er eitt stykki Frakki búinn að slöngva sér upp í tréð hér fyrir utan með vélsög og er að "snyrta" tréð sem hann hangir í. Já rétt hann hangir í trénu. Enginn stigi eða sambærilegt. Tréð er í mesta lagi 10cm í þvermál þar sem hann hangir enda sveiflast hann fram og tilbaka fyrir utan gluggann minn! Reyndar er bannað að fara með myndavél inn á svæðið svo ég get engar myndir sýnt ykkur! Magnað?
Skrifad 4/22/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Myndir
Jæja gærkvöldið fór í að setja upp nýtt myndaforrit fyrir heimasíðuna. Gamli mátinn tók óþarflega langan tíma og því vorum við ekki nógu dugleg að uppfæra. Þó þetta forrit hafi verið óþægilegt í uppsetningu þá er gríðarlega einfalt að bæta inn myndum og við gerum ráð fyrir því að uppfæra myndasíðuna oftar eftir þetta. Smelltu hér til að skoða nýjustu myndirnar.
Skrifad 4/22/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

TOEFL
Guðrún var rétt í þessu að klára TOEFL prófið og gekk virkilega vel.
Skrifad 4/21/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Þvottavélin & Ofninn
Í gær tengdum við nýju þvottavélina okkar. Þvílík spenna. Við kveiktum á henni og horfðum á hana í góðar 5 mínútur snúast. Það er hins vegar magnað að í frakklandi eru þvottavélar yfirleitt staðsettar í eldhúsinu og okkar hús er engin undantekning. Það er gert ráð fyrir þvottavél hægra megin við vaskinn í eldhúsinu okkar. Þegar þvottavélin var tengd var ofninn tengdur. Þá var ekkert að vanbúnaði að prófa græjurnar svo við elduðum kjötbollur með frösnkum og piparsósu á meðan við þvoðum þvott! Myndir af þessu öllu og fleiri myndir af íbúðinni koma í kvöld.
Skrifad 4/21/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Snilldarhelgi
Helgin var frábær. Við komum til Grenoble uppúr 11 og þá var farið beint til Munda og Svanhildar þar sem við gistum. Þar var spjallað til að verða 2 en Svanhildur þurfti að vakna snemma því hún þurfti að skila ritgerð eftir helgi. Laugardagurinn fór svo í afslappelsi og laugardagsköldið í mat heima hjá Betu. Þar var borðað Raclette, spilað og spjallað langt fram á nótt.

Við komum heim um hálfeittleytið í nótt með troðpakkaðan bílinn. Þvílíkt sem komst í bílinn. Við náðum að taka nánast allt dótið okkar. Við skildum eftir eina tösku með hlýjum fötum og snjóbrettin. Mundi og Svanhildur ætla að koma með það þegar þau koma í heimsókn í júní.
Skrifad 4/19/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Internet
Í gær hrökk internetið í gang, Þvílík gleði á okkar heimili. Við héldum upp á það með því að panta okkur þessa líka fínu Dominos pizzu. Um fjögurleytið í dag verður svo lagt í hann til Grenoble. Það er góð spá fyrir laugardaginn og við ætlum að stefna á skíði þá. Eftir helgi koma inn fullt af myndum af íbúðinni og ferðinni okkar til Grenoble.
Skrifad 4/16/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Páskar
Þá eru páskarnir búnir og við höfðum það mjög gott. Hvíldum okkur eftir öll lætin við flutningana. Í gær fengum við sent IKEA dótið okkar og settum rúmið saman. Restin verður sett saman í dag. Við eigum fullt af myndum sem ég set inn þegar við fáum internettenginuna. Annars erum við að hugsa um að skreppa til Grenoble næstu helgi til þess að sækja það sem við getum af dótinu okkar. Þó það sé mikið pláss í BMW-inum þá komst engan vegin allt. Ferðin verður vel nýtt og við stefnum á að fara í síðustu skíðaferð vetrarins með Munda og Svanhildi.
Skrifad 4/14/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

IKEA - IKEA - IKEA
Í gær var IKEA dagurinn ógurlegi. Við vorum búin að undirbúa þennan dag með 3 ferðum í IKEA, samt tók það okkur 4 klst að taka þetta til, klára sendingarmál og annað slíkt. Við keyptum okkur rúm, svefnsófa, þvottavél, potta, pönnu, hnífapör, diska og hillu í eldhúsið svo eitthvað sé nefnt. Það er sem sagt búið að kaupa svefnsófa sem er 140cm á breidd og hefur pláss fyrir 2. Svo eigum við þess fínu tvöföldu vindsæng sem 2 geta sofið á (með góðum vilja). Það ætti því að fara vel um gestina okkar. Við fáum þetta sent til okkar eftir rúma viku.
Skrifad 4/8/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

1 place de la Liberation
Já það er rétt, við eigum heima á frelistorgi 1. Við erum búin að taka fleiri myndir af íbúðinni (og bílaskýlinu) og ég set þær inn þegar ég get. Við fáum líklegast ekki internet heima fyrr en í næstu viku. Við erum hins vegar komin með síma. Síminn er 00 33 140848269.
Skrifad 4/8/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Búið að skrifa undir
Við erum búin að skrifa undir. Allt klappað og klárt og það var flutt inn í morgun. Það eru reyndar engin húsgögn í íbúðinni eins og er en í nótt verður einmitt gizt á vindsænginni okkar góðu. Á morgun verður verslað rúm og fleira gott í IKEA. Við erum komin með síma og nýtt símanúmer sem ætti að fara að virka seinna í dag. Ég hringdi í ADSL fyritækið okkar í dag og sagði þeim að við værum flutt, svo ég á von á internetinu í vikunni. Í morgun tók ég svo tíman á því hvað ég var lengi í vinnuna frá bílskúrnum okkar (ég trúi því eiginlega ekki ennþá) og það tók mig ekki nema hálftíma. Fólk hér í CEA er að eyða allt að 1,5 klst á leiðinni í vinnuna aðra leið.
Skrifad 4/6/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Le Relais de Venise
Í gær var farið á veitingastaðinn “Le Relais de Venise” eða “Grænu Sósuna” eins og Guðrún kallar hann. Þetta er ansi merkilegur staður og gríðarlega vinsæll. Á staðnum er enginn matseðill (nema fyrir eftirrétti). Fyrirkomulagið er þannig að manni er boðið sæti svo er spurt hvað skuli drekka og hvernig maður vilji kjötið steikt. Mjög stuttu seinna er komið með salat og brauð á borðið. Eftir salatið er komið með aðalréttinn. Aðalrétturinn eru niðurskornar nautalundir með grænni sósu og franskar kartöflur. Þegar fólk síðan klárar fyrstu umferð þá er bætt á diskinn öðru eins. Þetta er alveg magnaður staður og nokkuð ljóst að þeir sem koma í heimsókn til okkar koma til með að fara á þennan stað með okkur.

Mynd 1 – Ennþá röð fyrir utan staðinn kl 22:00

Í dag var svo farið í IKEA til að athuga með innkaup á rúmi og fleiru nauðsynlegu. Við fórum í stærsta IKEA í París sem er á 2 hæðum og er risastórt. Við ætlum þó ekki að kaupa neitt fyrr en við skrifum undir leigusamninginn á mánudaginn. Eftir það fórum við niður á Champs-Élysées verslunargötuna. Við röltum um í fínu veðri og fengum okkur svo að borða.

Mynd 2 – Sigurboginn
Mynd 3 – Risataska fyrir utan Louis Voitton
Mynd 4 – Risataska fyrir utan Louis Voitton
Mynd 5 – Guðrún að borða á Champs-Élysées

Morgundagurinn fer í lærdóm hjá Guðrúnu og ég þarf að klára ýmis mál. Guðrún fer í apríl í TOEFL (Test Of English as a Foreign Language) en það er seinna prófið sem hún þarf að taka til að komast inn í námið sitt.
Skrifad 4/3/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Íbúðin fundin
Í gær kom á netið auglýsing um glænýja íbúð til leigu. Þetta var ein af íbúðunum sem við skoðuðum. Við féllum algerlega fyrir þessari íbúð. Íbúðin er í 5 km fjarlægð frá miðborg Parísar og í 22 km fjarlægð frá vinnunni minni. Við ákváðum á staðnum að þetta væri íbúðin sem við vildum. Seinna sama dag fengum við svar frá leigumiðluninni um að við fengjum íbúðina. Ef allt gengur eftir þá skrifum við undir á þriðjudaginn og flytjum inn á þriðjudagskvöldið. Hér eru nokkrar myndir af íbúðinni:

Mynd 1 - Reyndar ekki íbúðin en við erum á leiðinni þangað
Mynd 2 - Svefnherbergið
Mynd 3 - Baðherbergið
Mynd 4 - Baðherbergið 2
Mynd 5 - Stofan
Mynd 6 - Eldhúsið
Mynd 7 - Gangurinn
Mynd 8 - Klósettið
Mynd 9 - Húsið utanfrá
Mynd 10 - Umhverfið
Mynd 11 - Umhverfið 2
Mynd 12 - Umhverfið 3
Mynd 13 - Umhverfið 4
Mynd 14 - Umhverfið 5

Íbúðin er í mjög góðu hverfi og stutt í allt. Það þarf aðeins að labba fyrir horn og þá sést La Tour Eiffel. Við erum virkilega spennt og vonum að þetta gangi eftir. Íbúðin er 53 fermetrar fyrir utan kjallara og bílastæði sem eru undir húsinu.
Skrifad 4/1/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |