Engin ný íbúð í dag
Við fundum ekki neina íbúð í dag þar sem að bíllinn var í viðgerð. Dagurinn var nýttur í íbúðarleit á netinu og við erum komin með rendez-vous á 8 stöðum á morgun, föstudaginn og einn á laugardaginn. Við erum að vonast til þess að geta skellt okkur á íbúð í næstu viku. Hér eru nokkrar myndi af því þegar við vorum að hlaða bílinn fyrir ferðina til Parísar.

Mynd 1 - Töskurnar vel spenntar
Mynd 2 - Bíllinn tilbúinn
Mynd 3 - Skottið
Mynd 4 - Þá er bara að leggja í hann
Mynd 5 - Sólin að setjast á leiðinni til Parísar

Við eigum pantaða 4 tíma á morgun. Við látum heyra hvernig það gekk.
Skrifad 3/31/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Önnur líkleg
Í dag fundum við íbúð sem var ekki jafn skemmtileg og sú fyrri en talsvert betur staðsett, þ.e. á milli vinnunnar minnar/skólans hennar Guðrúnar og Parísar. Hér eru nokkrar myndir innan úr íbúðinni, húsgögnin fylgja því miður ekki með :)

Mynd 1 - Stofan
Mynd 2 - Svefnherbergið
Mynd 3 - Svefnherbergið
Mynd 4 - Gangurinn
Mynd 5 - Baðherbergið Mikla
Mynd 6 - Eldhúsið

Við eigum fleiri tíma pantaða á morgun og áfram í vikunni. Við erum búin að finna það svæði sem væri best að búa á en það er erfitt að finna góða íbúð þar. Leitin heldur áfram.
Skrifad 3/30/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Fyrsti kandídat fundinn
Í dag fundum við mjög fína íbúð. Hún er 46 fm á 3. hæð, húsið er byggt 1997 og umhverfið er mjög fallegt. Það eru meira að segja risastórar svalir þar sem er pláss fyrir allavega 0,5 manns. Við skoðum fleiri íbúðir á þriðjudaginn og miðvikudaginn en það var mjög ánægjulegt að finna svona góða íbúð strax og það stefnir allt í að við reynum að ná þessari íbúð. Hér eru myndir teknar fyrir utan íbúðina:

Mynd 1 - Þekkist á stóru svölunum til hægri
Mynd 2 - Umhverfið
Mynd 3 - Umhverfið

Eftir að við vorum búin að skoða íbúðir fórum við inn í miðborg Parísar. Ég hef aldrei komið þangað áður. Við kíktum á Notre Dame, Champs Elyssée og fleira í sól og 17 stiga hita. Ég hef heyrt fólk tala um hvað París er falleg en það er ekki hægt að lýsa þessu. Umhverfið er magnað og ég er orðlaus yfir Notre Dame. Ég hlakka til að sjá meira af borginni.
Skrifad 3/29/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Flutningar
Jæja núna er klukkan (GMT+2 frá og með í dag) 12:30 hér í sveitinni og við erum að fara að leggja af stað eftir svona 2 tíma til Parísar. Konan sem við leigjum hjá ætlar að geyma nokkra hluti fyrir okkur því við komum engan vegin öllu í bílinn. Við eigum pantaða nokkra tíma á morgun, þriðjudaginn og miðvikudaginn til að skoða íbúðir. Nú er bara að krossleggja fingurna og vona að við finnum íbúð fljótt. Við fáum frábært veður til að flytja, úti er glampandi sól. Við látum heyra í okkur fljótt með hvernig þetta gengur allt saman.
Skrifad 3/28/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Mexíkanskur
Í dag fór Guðrún í heimsókn til Betu og Georges þar sem tíminn var vel nýttur til að skiptast á kvikmyndum og þáttum. Við erum að birgja okkur upp fyrir internetleysið í París. Þegar ég var búnn í skólanum sótti ég þau öll og við skelltum okkur á Mexíkanskan saman. Georges var að fá vinnu hjá Línuhönnun á íslandi svo þau eru á leiðinni heim. Fyrir verkfræðinördana sem lesa þessa síðu, þá var George að læra hjá Páli Valdimarssyni á sama tíma og við vorum í verkfræði.
Skrifad 3/23/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Góðar fréttir
Ég fékk frábærar fréttir í dag. Ég er búinn að ná öllum prófunum. Ég fékk úr Electrochemistry í dag, en það var mjög erfitt próf og ég hafði ekki lært neitt því líkt áður. Þvílík gleði, Jón náði. Í tilefni dagsins smíðaði Guðrún kjötbúðing og kartöflur fyrir mig, sem er vel. Hér eru svo 2 myndbönd frá skíðunum á sunnudaginn. Sem fyrr er best að hægrismella og velja "save as" því myndböndin eru um 12mb hvort. Myndböndin eru bæði af SvifTilraunum hjá okkur Munda.
--> Myndband 1 <--
--> Myndband 2 <--
Skrifad 3/22/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Snilldar helgi
Á föstudaginn var Íslendingapartý hérna í sveitinni hjá okkur í Vizille. Við byrjuðum á því að grilla og síðan var spilað á gítar og sungið að hætti íslendinga fram eftir nóttu. Allir gistu og morguninn eftir var því eldaður dýrindis raclett morgunmatur (egg og beikon og allt tilheyrandi). Laugardagurinn fór aðallega í afslöppun en sunnudaginn vöknuðum við snemma, settum heitt kakó á brúsa og vorum lögð af stað á skíði með Munda og Svanhildi klukkan 8:30. Veðrið var yndislegt sól og blíða enda skíðuðu flestir á peysunni án húfu og vettlinga. Þrátt fyrir að nota sólarvörn númer 15 þá er ég eins og karfi í framan í dag og nefið á mér er svo rautt að jólasveinninn gæti skipt út Rúdolfi. Jón slapp mun betur en er kominn með mjög gott sólgleraugnafar.

Núna í vikunni pökkum við niður og kveðjum sveitina okkar því að við stefnum að því að flytja til Parísar á laugardaginn. Við erum ekki ennþá búin að finna íbúð í París þannig að við munum líklega gista á hóteli fyrst um sinn. Við erum að vonast til að finna okkur góða íbúð í fyrstu vikunni því að nú verðum við á staðnum til að skrifa undir um leið og við finnum eina slíka. Þær rjúka út eins og heitar lummur þannig að það er eins gott að stökkva á þær um leið og ein slík er auglýst.
Skrifad 3/22/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Tómur kofi
Það er frekar einmannalegt hérna heima eftir að gestirnir eru farnir en í skaðabætur er sólin farin að skína og Mundi (Groundhog) spáir því að nú sé vorið komið. Það er heiðskýrt og 19 stiga hiti úti í hallargarðinum hérna hjá okkur.

Síðustu tvær vikur eru búnar að vera alveg frábærar. Við fórum með Sissu í skoðunarferð í dropasteinshella og á leiðinni sáum við fullt af skemmtilegum fjallaþorpum. Sum hver eru alveg mögnuð þar sem húsin eru nánast byggð utan í klettaveggi. Á einum staðnum mátti sjá hús þar sem kamrarnir hafa verið byggðir út úr húsunum svona líkt og svalir með gati í gegn. Þetta hefur þótt mjög hentugt hér áður fyrr þar sem "úrgangurinn" fellur í á sem rennur meðfram húsunum. Ekki mjög geðslegt. Sem betur fer eru þeir líklegast ekki í notkun lengur.

Ég fór með mömmu í göngutúr um hallargarð sem er hérna í Vizille. Þar er mjög fjölskrúðugt dýralíf þar sem hallargarðurinn er eins konar friðland. Við sáum heilu hjarðirnar af dádýrum og það er greinilega komið vor því að við sáum nokkra splunkunýja dádýrskálfa. Við sáum líka páfugla. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef séð páfugl í fullum skrúða. Fjaðurhafið er 2,5 metrar á breitt og litirnir alveg ótrúlegir.

Síðan var að sjálfsögðu verslað, enda ekki skortur á búðum hérna í Frakklandi, og setið á kaffihúsum. Franska stemmingin var allsráðandi enda Frakkland heimili Baguette brauðanna, kaffihúsa, osta og rauðvíns.
Skrifad 3/16/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Mamma Guðrúnar í hemsókn
Kristín mamma hennar Guðrúnar er komin í heimsókn til okkar. Ég er reyndar í vinnunni + skólanum frá 8-8 svo ég er ekki mikið laus. Ég sótti hins vegar mæðgurnar áðan í mollið "Grand Place" og þar var víst verslað sem aldrei fyrr.
Skrifad 3/11/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Heimsókn
Við vorum að sækja vinkonu mína hana Sissu á lestarstöðina. Hún verður í heimsókn hjá okkur fram á þriðjudag. Við Jón ætlum að nýta tækifærið og taka ferðamannapakkann á meðan hún er hérna. Við erum að stefna að því að kíkja á dropasteinshella sem eru hérna í nágrenninu og kíkja á Bastilluna í Grenoble.
Skrifad 3/5/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Íbúðir
Við fundum tvær girnilegar. Önnur er reyndar mjög dýr en að sama skapi flott, hin er mjög lítil en snyrtileg. Báðar væru fínir kandídatar nema að ég lenti í 2 tíma umferðarteppu á leiðinni tilbaka úr heimsókninni. 27 km frá rannsóknarsvæðinu virðast því vera of langt. Reyndar voru íbúðirnar nálægt central paris og því meiri umferð. Fyrst að þetta gekk ekki í þessari tilraun er mjög líklegt að við flytjum til Parísar og búum á "Bed & Breakfast" þangað til við finnum góða íbúð.

Guðrúnu gekk sæmilega í prófinu. Niðurstaðan hjá henni er yfir því sem þarf til að komast inn í annan skólann. Hún var samt óánægð og er að hugsa um að taka prófið aftur.
Skrifad 3/5/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Paris
Thessi faersla er gerd af Thradlausu neti af hotelherberginu okkar i Paris. Mer hefur ekki enn tekist ad finna goda ibud en kem til med ad skoda nokkrar a morgun. a morgun fer Gudrun i profid, hun er buin ad standa sig rosalega vel vid ad laera. Thetta gengur vonandi vel a morgun. Eftir profid keyrum vid svo heim.
Skrifad 3/2/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Klipping
Ég skrapp í klippingu í gær. Með því að smella á "Myndband" hér fyrir neðan má sjá Margverðlaunaðan MálaraMeistaran að verki. Mundi takk fyrir mig, ég er þvílíkt sáttur. --> Myndband <-- ATH gott er að hægrismella og velja "save as" þar sem myndbandið er um 9mb.
Skrifad 3/1/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Það heyrist bara ekkert í okkur
Nú er ég alltaf að vinna frá 8-5 og Guðrún er heima að læra fyrir GMAT. Við förum til Parísar á morgun mánudaginn 1. mars. Við keyrum eftir vinnu hjá mér. Það tekum um 6 tíma að keyra þetta. Guðrún fer svo í prófið þann 3. mars og á meðan verð ég að leita að íbúð fyrir okkur. Ég á þrjá pantaða tíma til að skoða íbúðir og svo er planið að nota aðal fasteignablaðið í París sem kemur einmitt út á þriðjudagsmorgnum. Kannski náum við að fara á netkaffi í París og skrifa hvernig gengur. Við erum mjög spennt að finna góða íbúð.
Skrifad 3/1/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |