Munchen - Austurríki
Við ákváðum á föstudaginn að skella okkur bara í 2000km ferðlag um helgina. Á laugardaginn keyrðum við norður til Sigfúsar og Eddu Bjarkar. Daginn eftir skelltum við okkur öll saman til Austurríkis þar sem Ásbjörg og Magnús voru á skíðum. Við skíðuðum um daginn, borðuðum saman og sjölluðum fram á kvöld. Uppúr tíu keyrðum við svo aftur til Muchen. Daginn eftir var slappað af og í gær spilðum við svo frameftir. Á eftir leggjum við af stað heim aftur. Helgin er búin að vera frábær.
Skrifad 2/17/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

CEA
Nú er ég búinn að vinna í eina viku hér hjá CEA. Ég er með skrifstofu útaf fyrir mig og er aðallega búinn að vera að lesa greinar um varmaskipta og reyndar varmaflutningsfræði almennt. Þessi hluti hér í Grenoble er til þess ætlaður að ég kynnist varmaskiptum vel. Þegar ég byrja að vinna í París þá hefst modeling og gagnaöflun.

Í næstu viku er ég að fara að hjálpa prófessor að framkvæma tilraunir með micro-varmaskiptum, það er mjög litlum varmaskiptum. Það er þó frekar kaldhæðnislegt að tækin taka heilt herbergi.

Í Frakklandi er unnið í 35 tíma á viku. Hér í CEA er unnið í 40 tíma á viku og því vinn ég mér inn auka frí sem ég get notað nánast hvenær sem er. Ég vinn frá 8 til 16:30 með 45 mínútur í mat.
Skrifad 2/13/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Les Deux Alpes
Við skelltum okkur á snjóbretti á sunnudaginn. Það var alveg rosalega gott færi og sól og blíða. Við skíðuðum allan daginn og vorum dauðþreytt þegar við komum heim. Enda ber maður þess merki í dag smá sólbrunninn og með ágætis harðsperrur. Annars er allt gott að frétta. Góða veðrið virðist ekkert vera að fara. Það er 16 stiga hiti og sól úti núna og ég sá fyrsta geitung vorsins hérna fyrir utan hjá okkur. Ég veit samt ekki hversu góðar fréttir það eru en þeir virðast fylgja góða veðrinu.
Skrifad 2/9/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Reynsla
Mæli með því að fólk kíki á þetta. Ég get ekki neitað því að reynsla íslendinga af frökkum hér í Grenoble síðastliðinn föstudag var ekki sem best.
Skrifad 2/8/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Kláraði prófin
Á föstudaginn kláraði ég seinasta prófið mitt. Þetta var munnlegt próf og við áttum að kynna lokaverkefnið okkar fyrir kennaranum. Kynningin átti að hefjast kl 10:30.

Það vill svo skemmtilega til að ég er gríðarlega tæknisinnaður og óskaði því eftir því við hópinn að kynningin yrði á powerpoint formi. Það virtist ekki vera tíðarandinn og því var niðurstaðan að hafa glærur. Gott og vel.

Einn hópmeðlimurinn tók það að sér að taka kynningarhluta hvers og eins og setja saman fyrir kynninguna. Þetta ætlaði viðkomandi að gera um morguninn sem prófið var. Gott og vel.

Kl. 10:30 eru flestir meðlimir hópsins mættir og það kemur í ljós að á svæðinu er einmitt skjávarpi og að kennarinn gerði ráð fyrir því að nemendur myndu kynna á hátækniforminu powerpoint. Þar af leiðandi var enginn myndvarpi í húsinu. Gott og vel, þessu má bjarga.

Við reynum að ná í hópmeðliminn sem átti að smíða glærurnar, hann svarar ekki. Kl. 10:45 mætir drengurinn, sveittur og pirraður. Við tilkynnum honum að það sé einfaldlega enginn myndvarpi á svæðinu, einungis skjávarpi.

Sá ágæti maður tekur sig þá til og kastar glærunum og ritgerðinni á gólfið (með góðri normal dreyfingu á glærum) og byrjar að blóta og ragna á frönsku. Það skal tekið fram að þegar hér er komið við sögu standa hinir hópmeðlimirnir, ásamt kennaranum, andspænis þessum gjörningi. Ekki gott og ekki vel.

Þá tekur ein stúlkan í hópnum sig til og fer að gráta, drengurinn heldur áfram að blóta og ég reyni að létta andrúmsloftið með lélegum bröndurum á bjagaðri frönsku. Engan veginn gott og bara alls ekki vel.

Til að gera langa sögu stutta þá var sóttur myndvarpi, kynningin haldin, kennaranum líkaði hún vel og allt virðist vera klappað og klárt eins og ekkert sé eðlilegra.

Hver er niðurstaða málsins? Ég skil ekki frakka.
Skrifad 2/8/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Búinn með Electrochemistry
Jæja í gær kláraði ég Elecrochemistry prófið og gekk ágætlega m.v. aldur og fyrri frönsku. Ég fer svo í annað próf á föstudaginn. Eftir það hefst vinna á rannsóknarstofu CEA. Ég á að mæta mánudaginn 8. feb.
Skrifad 2/4/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Matarboð
Okkur Jóni og Munda og Svanhildi var boðið í mat til Betu og George. Það var frábært að hitta þau aftur og taka smá pásu frá lærdóminum. Þau voru með raclette og síðan var ís með snickers-sósu í eftirrétt. Maturinn og félagsskapurinn var alveg frábær!

Annars erum við að læra á fullu núna því að Jón er að fara í próf í Genie Electrochimique í fyrramálið. Það er samt þvílík synd að sitja inni að læra því að það er 12 stiga hiti og sól úti.
Skrifad 2/2/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |