Laugardagskvöld
Við fórum út að borða síðasta laugardag á Buffalo Grill. Jón fékk sér steik með piparsósu og ég fékk mér BBQ rif. Við höfum ekki borðað fínan mat frá því á jólunum þannig að þetta var alger veisla. Við ákváðum svo að drífa okkur í bíó eftir matinn og fórum á myndina Le Dernier Samurai. Myndin var með ensku tali og frönskum texta. Hlutar af myndinni fara fram á japönsku og þá þurftum við að styðjast eingöngu við franska textann. Við erum sem betur fer búin að læra slatta í frönsku þannig að það gekk bara vel að skilja hvað var að gerast.

Núna snjóar í Vizille. Það er komin hvít slæða yfir allt hérna og snjórinn fellur rólega niður í blankalogni. Snjórinn hérna virðist vera öðruvísi en heima og líkist hann helst gervisnjó í bíómynd.
Skrifad 1/28/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Hættur á skyndibitastöðum
Heyrst hefur að það sé hægt að skera sig á McDonalds tómatsósubréfi.
Skrifad 1/28/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Símaat í Frakklandi
Símaöt í Frakklandi eru talsvert áhugaverðara en heima á Íslandi. Í morgunútvarpinu hérna í Grenoble má oft heyra símaöt þ.e. þegar útvarpsstöðin hringir í einhvern og lýgur einhverju að honum. Þetta er gert í þeim tilgangi að fá manneskjuna til að æsa sig í símann því að það þykir alveg rosalega fyndið. Hérna tekur að meðaltali 30 sekúndur að fá fólk til að æsa sig all verulega og öskra í símann. Orðbragðið og lætin eru alveg ólýsanleg og þetta finnst Frökkum mjög fyndið.

Annars erum við Jón alltaf að læra núna þannig að það er ekki mikið að frétta. Ég er að læra undir GMAT sem er próf í stærðfræði, rökhugsun og ensku. Ég þarf að taka GMAT og TOEFL (enskupróf) því að ég er að stefna að því að fara í MBA nám í París næsta haust. MBA (Master of Business Administration) er almennt stjórnunar- og rekstrarnám á meistarastigi.
Skrifad 1/22/2004 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Farið að kólna aftur
Mér skilst að það sé kalt heima þessa dagana. Það er búið að vera ótrúlega heitt hérna upp á síðkastið, svona 13-15 stiga hiti og sól. Hins vegar er farið að kólna núna og hitinn úti er 3-4 gráður. Ullarsokkarnir og ullarpeysan sem við fengum um jólin eru að koma sér vel :)
Skrifad 1/18/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Lærdómur
Við Guðrún sitjum núna heima að læra. Ég er að lesa "Genie Electrochimique" og Guðrún er að reikna fyrir GMAT. Næstu 2 vikur verða ansi uppteknar hjá mér. Skólinn er frá 9-17 alla daga og svo þarf ég að læra fyrir prófin þess á milli. Seinasta prófið er hins vegar 6. febrúar.
Skrifad 1/17/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Þvottur
Þvotturinn var þveginn í gær. Svosem ekker merkilegt við það nema að við vorum seint að. Rétt áður en þvottavélarnar voru búnar þá slökknuðu allt í einu ljósin inni í þvottastöðinni. Við litum í kring um okkur og tókum eftir að það lokaði fyrir 30 mínútum síðan og lokunin fer fram með sjálfvirkum segullás. Það fór hrollur um okkur en sáum þó fljótlega að það var "neyðar takki" til að opna hurðina. Við leyfðum því þvottavélunum að klára en gátum auðvitað ekki sett þvottinn í þurrkara. Núna er sem sagt annað herbergið okkar undirlagt af blautum þvotti með tilheyrandi gufubaði. Sem betur fer vorum við þó búin að fjárfesta í þvottasnúrum.
Skrifad 1/15/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Ekkert heyrst
Það hefur verið mikið að gera hjá okkur síðan við komum til Frakklands. Skólinn hjá mér er á fullu og prófin byrja í byrjun næsta mánaðar. Við Guðrún lærum saman og erum að fara í fyrramálið á bókasafnið til að læra. Guðrún er að undirbúa sig fyrir að taka GMAT til að geta sótt um skóla í París.

Í dag fórum við á líkamsræktarstöð í fyrsta sinn síðan við komum hingað. Við fundum virkilega góða keðju sem er með yfir 20 útibú í París svo kortið okkar gengur þar líka. Þessi líkamsræktarstöð var mjög svipuð þeim heima nema að það voru 3 einkennisklæddir kennarar á rölti um stöðina líklega bara til að leiðbeina fólki. Það var þó eins og þetta fólk hefði fleiri hlutverk. Einn karlkyns kennarinn fannst hann t.d. þurfa að vera í rifnum einkennisbúningi meðan hann lyfti lóðum og kvenkyns kennarinn sá sér ástæðu til þess að dansa einhversskonar jazz ballet á miðju gólfinu allan tímann sem við vorum þarna. hmmm!
Skrifad 1/14/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Komin aftur til .fr
Í gærkveldi komum við aftur til Vizille. Við höfðum áhyggjur af því að það yrði mjög kalt í íbúðinni þegar við kæmum en það var ekki raunin. Hitastigið í Grenoble er í kring um forstmark þessa dagana. Annars viljum við þakka fyrir okkur. Jólin voru frábær. Gaman að hitta fjölskylduna, vinina og borða góðan mat.
Skrifad 1/6/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |

Hættur á skyndibitastöðum
kokteilsósuumbúiðir eru stórhættulegar.
Skrifad 1/2/2004 | Jón Þór Sigurvinsson |