Gleðileg jól
Gleðileg jól
Skrifad 12/24/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Heima
Á leiðinni heim sváfum við ekkert áður en við lögðum af stað. Við ætluðum að gista hjá Gísla og Siggu en enduðum með því að spila kana með þeim þangað til að klukkan var orðin 4 um nótt og lögðum þá af stað heim. Við erum búin að hafa það rosalega gott heima og framundan eru jólaboð á eftir jólaboðum. Stefnan er að taka með sér 1-2 aukakíló til frakklands.
Skrifad 12/23/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Sjónvarp
Við vorum að koma úr heimsókn hjá Gísla og Siggu, en þau eru einmitt búin að vera í námi hér í eitt ár og voru að klára síðasta prófið sitt. Það vill svo skemmtilega til að þau áttu þetta fína sjónvarp sem er einmitt ekki hægt að nota á íslandi. Við versluðum auðvitað græjuna og erum nú stoltir eigengur að eðal 14" Sharp sjónvarpi með textavarpi. Á föstudaginn förum við svo heim til Íslands. Stefnan er að vera á Íslandi fram til 5. janúar en það er ekki alveg komið á hreint.
Skrifad 12/17/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Skólinn
Klukkan er núna 7:10 að morgni og ég er á leiðinni í skólann. Það er mjög mikið að gera hjá mér þessa dagana, ég er í skólanum frá 8 til 20 alla daga og það verður þannig bróðurpartinn af janúar líka. Svo eru prófin í febrúar.

Veit ekki hvort einhver þekkir þetta verkefni en ég er búinn að fylgjast með þessu síðan snemma í framhaldsskóla.
Skrifad 12/16/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Hættur á heimilum
Fyrir nokkrum vikum komst ég að því að það er hægt að skera sig á heimilistölvum. Í gær komst ég að því að það er hægt að stinga sig á Nokia GSM hleðslutækjum. Hvað verður næst....
Skrifad 12/13/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Crepes
Í gær var okkur boðið í franskan kvöldverð hjá Svanhildi og Munda. Þau buðu upp á crepes sem er nokkurs konar pönnukaka fyllt með osti, skinku, sveppum og fleira góðgæti. Síðan var spjallað og spilað til að ganga eitt. Þetta var snilldarkvöld og við þökkum kærlega fyrir okkur.
Í kvöld erum við síðan að fara í boð hjá verkfræðinni hans Jóns en meira um það á morgun.
Skrifad 12/11/2003 | Gudrun Thorgeirsdottir |

Deux Alps og Hangikjöt
Laugardagurinn var aldeilis viðburðaríkur. Við skelltum okkur í Deux Alps með Munda og Svanhildi. Þau komu og sóttu okkur snemma og við skíðuðum í frábæru veðri þangað til að verða þrjú. Ég er búinn að setja myndirnar á myndasíðuna. Með því að smella hér er hægt að downloada stuttri kveðju frá okkur (4mb)
Eftir brettaferðina fórum við heim, tókum sturtu, skiptum um föt og fórum af stað í íslendingapartý. Elísabet og George buðu öllum íslendingunum í heimsókn til sín í mat og íslenskt Idol. Í matinn var íslenskt hangikjöt sem foreldrar Svanhildar komu með um fyrir stuttu. Maturinn var alger snilld og kvöldið frábært.

Skrifad 12/8/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Myndir
Við erum að flokka og fara yfir myndirnar okkar. Við settum einn skammt af myndum inn á myndasíðuna. Fleiri koma um helgina.
Skrifad 12/5/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Rotterdam - BMW sóttur
Núna er klukkan fjögur að nóttu og við Guðrún vorum að koma heim eftir 24 tíma ferðalag til Rotterdam. Við lögðum af stað kl 4:30 í gær. Bíllinn er því loksins kominn okkur til mikillar ánægju. Lestarferðin tók um 9 tíma, að leysa bílinn úr tollinum 3 tíma og ferðin heim um 12 tíma (1100km). Nú er það bara svefninn, það er skóli hjá mér eftir tæpa 4 tíma.

Skrifad 12/4/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Rotterdam
Í staðinn fyrir að setja inn myndir í dag þá ákváðum við að skella okkur til Rotterdam á morgun. Þessi færsla er gerð frá Munda og Svanhildi. Við gistum hjá þeim í nótt og leggjum af stað kl. 5 í fyrramálið. BMW-inn verður þá loksins sóttur. Við gerum ráð fyrir að ferðalagið taki um 20 tíma.
Skrifad 12/3/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

Bretti
Nokkrir verkfæðinördar buðu mér með sér á bretti um helgina. Við fórum á einkabíl og það tekur u.þ.b. 40mín að keyra til fjallsins. Þar var tekin lyfta í skíðabæ með öllu tilheyrandi. Þetta var fyrst dagurinn sem opnaði og við vorum fyrsta fólkið í sérstaka brekku sem þeir voru búnir að sérvelja fyrirfram. Sú brekka er merkt sem þyngsta erfiðleikastig og er ekki troðin. Ég fór auðvitað með en komst fljótt að því að ég er ekki ungt hraust verkfæðinörd lengur. Eftir að hafa dottið u.þ.b. 10 sinnum, fyllt jakkan minn af snjó, týna húfunni minni (fann hana aftur) og missa andann í þunna loftinu (2300m) ákvað ég að ég gæti ekki alveg haldið í við þá að svo stöddu.

Ég jafnaði mig þó fljótt og fann mér troðnar leiðir. Ég fór alla leið upp á topp, 3600m, og skíðaði niður í 1500m í mjög skemmtilegri brekku. Ég vildi óska að ég hefði haft myndavélina mína með það er virkilega fallegt þarna Mundi & Svanhildur fóru sama dag og þau tóku nokkrar myndir. Við Guðrún ætlum að skella okkur næstu helgi og þá hendum við inn myndum.
Skrifad 12/2/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |

ADSL
Jæja það kom að því. Við erum komin með ADSL. Við fengum reyndar pakkann á föstudaginn en þá átti France Telecom eftir að virkja ADSL merkið á línunni. Jón gerði sér lítið fyrir og hringdi í France Telecom og viti menn þeir skildu mig og næsta virka dag var þetta komið í lag. Alltaf gaman þegar fólk kemur manni á óvart. Nýjar myndir koma á morgun.
Skrifad 12/2/2003 | Jón Þór Sigurvinsson |